Skoðun

Heims­mark­mið Sam­einuðu þjóðanna og stefna Sósíal­ista­flokksins

Árni Múli Jónasson skrifar

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru samþykkt af öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna, þ.m.t. íslenska ríkinu árið 2015. Markmiðin eru þessi:

1: Engin fátækt. Útrýma fátækt í allri sinni mynd alls staðar.

2: Ekkert hungur. Útrýma hungri, tryggja fæðuöryggi og bætta næringu og stuðla að sjálfbærum landbúnaði.

3: Heilsa og vellíðan. Stuðla að heilbrigðu lífi og vellíðan fyrir alla frá vöggu til grafar.

4: Menntun fyrir alla.Tryggja öllum jafnan aðgang að góðri menntun og tækifæri til náms alla ævi.

5: Jafnrétti kynjanna. Jafnrétti kynjanna verði tryggt og völd allra kvenna og stúlkna efld.

6: Hreint vatn og hreinlætisaðstaða.Tryggja öllum aðgengi að hreinu vatni og sjálfbæra nýtingu þess svo og hreinlætisaðstöðu.

7: Sjálfbær orka. Tryggja öllum aðgang að öruggri og sjálfbærri orku á viðráðanlegu verði.

8: Góð atvinna og hagvöxtur.Stuðla að viðvarandi sjálfbærum hagvexti og arðbærum og mannsæmandi atvinnutækifærum fyrir alla.

9: Nýsköpun og uppbygging. Byggja upp trausta innviði, stuðla að sjálfbærri iðnvæðingu og hlúa að nýsköpun.

10: Aukinn jöfnuður.Draga úr ójöfnuði innan og á milli landa.

11: Sjálfbærar borgir og samfélög.Gera borgir og íbúðasvæði öllum auðnotuð, örugg og sjálfbær.

12: Ábyrg neysla og framleiðsla.Sjálfbær neyslu- og framleiðslumynstur verði tryggð.

13: Aðgerðir í loftslagsmálum.Grípa til bráðra aðgerða gegn loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra.

14: Líf í vatni. Vernda og nýta hafið og auðlindir þess á sjálfbæran hátt.

15: Líf á landi. Vernda og endurheimta vistkerfi á landi og stuðla að sjálfbærri nýtingu þeirra, vinna að sjálfbærri stjórnun skóga, berjast gegn eyðimerkurmyndun, stöðva jarðvegseyðingu og endurheimta landgæði og sporna við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni.

16: Friður og réttlæti. Stuðla að friðsælum og sjálfbærum samfélögum fyrir alla jarðarbúa, tryggja öllum jafnan aðgang að réttarkerfi og byggja upp skilvirkar og ábyrgar stofnanir fyrir alla.

17: Samvinna um markmiðin . Efla framkvæmd og blása lífi í alþjóðlegt samstarf um sjálfbæra þróun.

Ríki heims hafa skuldbundið sig til þess að vinna skipulega að innleiðingu markmiðanna bæði á innlendum og erlendum vettvangi út gildistíma þeirra. Mannkynið, jörðin, hagsæld, friður og samstarf eru fimm meginstef markmiðanna og aðalinntak þeirra er að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir.

Hvað getur þú gert til að heimsmarkmið SÞ náist?

Heimsmarkmiðin ríma mjög vel við stefnumál Sósíalistaflokksins og ef þú veltir því fyrir þér hvað þurfi að gera til að við náum þessum markmiðum, sem eru svo mikilvæg fyrir mannkynið allt, hvet ég þig eindregið til að kynna þér stefnu flokksins, (https://sosialistaflokkurinn.is/stefnan/).

Og þú getur með mjög einföldum en áhrifaríkum hætti lagt þitt af mörkum til að þessi markmið verði að veruleika:

Gangtu til liðs við Sósíalistaflokkinn og greiddu honum atkvæði þitt í alþingiskosningunum 25. september.

Höfundur er félagi í Sósíalistaflokknum og er í framboði fyrir flokkinn í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×