Innlent

Ó­sáttir við garð­hýsi í Grjóta­þorpinu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sverrir og Oddur búa báðir í Grjótaþorpinu.
Sverrir og Oddur búa báðir í Grjótaþorpinu. Vísir/Aníta

Tveir íbúar í grjótaþorpinu eru ósáttir við svör sem þeir hafa fengið frá borginni vegna garðhýsis sem nágranni þeirra hefur sett upp. Borgin er eini umsagnaraðilinn að byggingunni, sem liggur að borgarlandi.

Þeir Oddur Björnsson og Sverrir Guðjónsson  eru búsettir sinn í hvorum enda Grjótaþorpsins. Þeim hugnast ekki garðhýsi sem komið hefur verið fyrir á lóð eins elsta húss þorpsins, og telja borgina draga lappirnar í málinu. Vegna staðsetningar þurfa aðeins borgaryfirvöld að veita samþykki fyrir framkvæmdinni, þar sem aðliggjandi lóðir teljast til borgarlands. Því kemur ekki til kasta nágranna í málinu.

„Það kemur okkur bara spánskt fyrir sjónir. Hér má í húsum ekki lengur skipta um rúðu eða gluggapóst án þess að það fari fyrir þar til gerðar nefndir, þess vegna veltum við fyrir okkur hvort það sé þá ekki á móti að borgin verndi þá okkur, þegar kemur að því að borgin er umsagnaraðili í svona gjörningi,“ segir Oddur.

Hér er hýsið sem um ræðir.Vísir/Aníta

Fréttastofa náði tali af byggingarfulltrúa í Reykjavík sem segir hýsið innan leyfisskyldra marka hvað varðar stærð þess í fermetrum og hæð.

„Byggingarfulltrúi og þeir sem ráða þar verða að skoða þetta í svolítið víðu samhengi, og bera þetta saman við það sem er að gerast hérna í þorpinu. Hvernig húsin líta út,“ segir Sverrir.

Hann og Oddur telja hýsið ekki falla að umhverfi þorpsins og benda á að fjöldi ferðamanna leggi leið sína þar í gegn á degi hverjum og benda á að þeir komi til þess að sjá þorpið „í sínu besta ljósi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×