Boða til neyðarfundar til að ræða útbreiðslu Delta-afbrigðisins Atli Ísleifsson skrifar 28. júní 2021 08:07 Verst er ástandið í Sydney þar sem um 128 manns hafa smitast síðustu daga en afbrigðið hefur einnig látið á sér kræla annars staðar í landinu. Getty Yfirvöld í Ástralíu hittast á neyðarfundi í dag til að ræða aukna útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu en undanfarið hefur Delta-afbrigðið svokallaða verið að sækja verulega í sig veðrið.
Verst er ástandið í Sydney þar sem um 128 manns hafa smitast síðustu daga en afbrigðið hefur einnig látið á sér kræla annars staðar í landinu. Útgöngubanni hefur meðal annars verið komið á bæði í Sydney og í Darwin vegna útbreiðslunnar, búið er að herða takmarkanir í fjórum ríkjum landsins og hefur fjöldi verslana og ýmissi starfsemi verið gert að loka. Þetta er í fyrsta sinn í marga mánuði þar sem kórónuveirusmit greinast í mörgum landshlutum Ástralíu á sama tíma, en Áströlum hefur gengið vel í baráttunni gegn veirunni. Fjármálaráðherrann Josh Frydenberg segir að „nýjan fasa“ hafinn í faraldrinum í Ástralíu, vegna útbreiðslu Delta-afbrigðisins. Alls hafa rúmlega 30 þúsund kórónuveirusmit komið upp í Ástralíu frá upphafi faraldursins og þá hafa 910 dauðsföll í landinu verið rakin til Covid-19. Yfirvöld í Nýju Suður-Wales hafa beint því til íbúa að láta bólusetja sig, og hafa bent á að í þrjátíu manna samkvæmi, sem haldið var í Sydney á dögunum, hafi 24 smitast af veirunni. Þeir einu sem smituðustu ekki voru þeir sem höfðu látið bólusetja sig. Einungis teljast fimm prósent Ástrala, sextán ára og eldri, nú fullbólusettir og þá teljast um þrjátíu prósent íbúa hálfbólusettir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ástralía Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent „Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er augljóst“ Innlent Ætli sér ekki að banna hinsegin fánann Innlent Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Innlent Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Innlent Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG Erlent Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Innlent Fleiri fréttir Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG SAS fellir niður allt flug til Grænlands Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Sjá meira