„Það er enginn sigurvegari í þessu kapphlaupi“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. júní 2021 11:00 Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. UNICEF Nýtt fjáröflunarátak UNICEF á Íslandi hófst í dag –Allir eiga sama rétt á bólusetningum – Enginn er öruggur fyrr en allir eru það.
Í nýju fjáröflunarátaki kallar UNICEF á Íslandi eftir stuðningi almennings, fyrirtækja og stjórnvalda til að tryggja jafna dreifingu bóluefna gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heimsins. Yfirskrift átaksins er Komum því til skila og þar bendir UNICEF á að það sé ekki einungis siðferðislega rétt heldur einnig hagur allrar heimsbyggðarinnar að tryggja að öll ríki heimsins fái bóluefni fyrir íbúa sína hratt og örugglega. Það er skilvirkasta leiðin til að sigrast á faraldrinum og koma lífi okkar og efnahag aftur í rétt horf. Hægt er að styðja átakið með því að senda SMS-ið COVID í númerið 1900 og tryggja þar með dreifingu bóluefnis fyrir þrjá einstaklinga. Mikil þörf á samstöðu „Það er enginn sigurvegari í þessu kapphlaupi, við þurfum öll að standa saman til þess að hægt sé að útrýma veirunni fyrir fullt og allt. Við erum á góðum stað hér á Íslandi og bólusetningar ganga vel en því miður er staðan ekki sú sama í efnaminni ríkjum heimsins. Stjórnlaus útbreiðsla COVID-19 í Suður-Asíu er til dæmis glöggt dæmi um það hversu hratt veiran getur lamað heilbrigðiskerfi og valdið hamförum. Það þarf að bregðast við þessari misskiptingu enda eiga allir sama rétt á að fá bólusetningu. Það hefur aldrei verið jafn mikil þörf á samstöðu eins og nú,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, leiðir innkaup og dreifingu bóluefnanna til efnaminni ríkja heimsins fyrir hönd COVAX-samstarfsins. COVAX-samstarfið er samstarf um 190 ríkja sem tryggja á jafna dreifingu bóluefnis gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heimsins. Nú þegar hefur COVAX-samstarfið komið 78 milljónum skammta til 126 landa, má þar nefna Sýrland, Ghana, Bólivíu, Úkraínu, Mongólíu, Suður-Súdan, Fílabeinsströndina, Kambódíu, Kíribati og Afganistan.“ Hægt er að fylgjast með þróun bóluefna gegn COVID-19 og árangri COVAX-samstarfsins í sérstöku mælaborði hér. Frá bólusetningu í Eþíópíu.UNICEF Skora á efnameiri ríki að gefa umframskammta „Þrátt fyrir ítrekuð áköll frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni (WHO), UNICEF og fleiri stofnunum hefur bóluefnum gegn COVID-19 verið mjög misskipt milli ríkja heimsins. Ástandið á Indlandi hefur valdið því að mikið hefur dregið úr framboði bóluefna til COVAX á sama tíma og mörg efnameiri lönd hafa tryggt sér mun fleiri skammta en þau þurfa. Minna en eitt prósent af bóluefnum sem hafa verið framleidd hafa skilað sér til efnaminni ríkja heimsins,“ segir í tilkynningu frá UNICEF. „Ef efnaminni ríki heimsins eru skilin eftir er hætta á að ný afbrigði veirunnar breiðist út um heiminn. Vart þarf að fjölyrða um hversu skelfilegar afleiðingar slíkt hefur á börn um allan heim og þeirra framtíð. UNICEF hefur því sent út alþjóðlegt ákall þar sem skorað er á efnameiri ríki heimsins að gefa umframskammta sína. Nokkur ríki hafa svarað kallinu og vonir standa til um að slík loforð verði einnig gefin á leiðtogafundi G7 ríkjanna sem fer fram í lok vikunnar. UNICEF bendir á að G7 ríkin gætu gefið 20 prósent af bóluefnum sem til eru til COVAX án verulegra tafa á núverandi áætlunum um að bólusetja fullorðna íbúa sína í sumar og er UNICEF tilbúið að dreifa þeim. Íslensk stjórnvöld tilkynntu í síðustu viku að heita 500 milljónum króna til COVAX-samstarfsins til viðbótar við það sem stjórnvöld höfðu áður lagt til. Ísland hefur því nú varið rúmum milljarði króna til að tryggja jafna dreifingu bóluefna.“ 32 tonn af bóluefni á flugvelli í Venezuela.UNICEF Fyrirtæki á Íslandi hafa einnig brugðist við og næstu vikur munu Krónan, Te&Kaffi og BM Vallá bjóða viðskiptavinum sínum að styðja söfnun UNICEF og gefa fyrirtækin framlag á móti. Þá þegar hafa Alvogen og Alvotech gefið 100 þúsund dollara í átakið. Einnig taka Vörður, Deloitte og Lindex þátt í átakinu. „Við erum bandamönnum okkar innilega þakklát og vonumst til þess að sem flestir hjálpi okkur að takast á við þetta sögulega verkefni. Þetta ógnarstóra verkefni, að bólusetja heimsbyggðina, bætist ofan á öll önnur verkefni UNICEF í þágu barna og því er mikil þörf á auknum stuðningi. Við stöndum frammi fyrir áskorun sem allur heimurinn þarf að hjálpast við að leysa og það þarf að gerast núna,“ segir Birna að lokum. Hægt er að styðja átakið með því að senda SMS-ið COVID í númerið 1900 og tryggja þar með dreifingu bóluefnis fyrir þrjá einstaklinga. Einnig er hægt að styðja með frjálsu framlagi hér.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Einungis búið að bólusetja um 0,8 prósent Suður-Afríkumanna Á meðan vestræn ríki eru komin vel á veg með að bólusetja stóran hluta landsmanna hafa ríki Afríku setið á hakanum. 9. júní 2021 07:54 „Covid lýkur ekki fyrr en því lýkur alls staðar“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir baráttuna við kórónuveiruna hvergi nærri búna, þrátt fyrir að bjartari tímar séu fram undan hér á landi. Enn sé langt í land og segir Víðir að við verðum að taka þátt í alþjóðlegri baráttu gegn veirunni. 8. júní 2021 09:00 500 milljóna viðbótarframlag til COVAX Íslensk stjórnvöld hafa talað fyrir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu um þróun og framleiðslu bóluefnis og jafns aðgangs ríkja óháð greiðslugetu þeirra. 2. júní 2021 15:31 Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Fleiri fréttir Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Sjá meira
Einungis búið að bólusetja um 0,8 prósent Suður-Afríkumanna Á meðan vestræn ríki eru komin vel á veg með að bólusetja stóran hluta landsmanna hafa ríki Afríku setið á hakanum. 9. júní 2021 07:54
„Covid lýkur ekki fyrr en því lýkur alls staðar“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir baráttuna við kórónuveiruna hvergi nærri búna, þrátt fyrir að bjartari tímar séu fram undan hér á landi. Enn sé langt í land og segir Víðir að við verðum að taka þátt í alþjóðlegri baráttu gegn veirunni. 8. júní 2021 09:00
500 milljóna viðbótarframlag til COVAX Íslensk stjórnvöld hafa talað fyrir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu um þróun og framleiðslu bóluefnis og jafns aðgangs ríkja óháð greiðslugetu þeirra. 2. júní 2021 15:31