„Viðtökur hafa verið gríðarlega góðar á þeim reiknivélum sem við höfum smíðað og á örfáum mánuðum hafa um þrjú þúsund félagsmenn og bókarar notað reiknivél Starfsgreinasambandsins til að stemma af laun sín. Iðnaðarmenn hafa líka verið duglegir að reikna laun sín á netinu en sú reiknivél er mjög ólík reiknivél Starfsgreinasambandsins, enda samningar og forsendur mjög ólíkar,“ segir Baldvin um reiknivélarnar.
Launaútreikningar oft flóknir
Í byrjun árs 2019 gerði UX Design tvo samninga um hönnun og smíði reiknivéla launa á netinu.
Annars vegar samning við Starfsgreinasambandið (SGS) og hins vegar samning um reiknivél fyrir félagsmenn Matvís, Rafís, Fit, Samiðn, VM, Byggiðn og félag hársnyrtisveina.
„Þessi smíði var gríðarlega flókin þó sérstaklega fyrir kjarasamninga Starfsgreinasambandsinns enda eru samningar fyrir ríkið, sveitarfélög og almenna markaðinn ólíkir samningum iðnaðarmanna og mikill fjöldi starfsstétta í kjarasamningnum SGS. Launasamningar kjarasamninga þurfa einnig að hækka á mismunandi tímum, félagsmenn þurfa að fá hækkanir samkvæmt starfsaldri og reglulega koma ný ákvæði inn sem þurfti að gera ráð fyrir í reiknivélinni,“ segir Baldvin.
Að sögn Baldvins, einsetti UX Design sér það þó strax að smíða einfaldar reiknivélar fyrir notendur sem um hundrað þúsund félagsmenn í um þrjátíu og níu stéttarfélögum gætu notað.
Þá þurfti að taka mið af því að reiknivélin væri einföld í notkun.
„Notendur eru yfirleitt fólk sem hefur takmarkaða bókhaldsþekkingu og reiknivélin þarf að finna rétta kjarasamning og launataxta miðað við starfsaldur og reiknað flóknustu launadæmi án nokkurra mannlegra aðstoðar,“ segir Baldvin og bætir við: „Í reiknivél okkar þurfa félagsmenn aðeins að svara nokkrum einföldum spurningum og getur þá launareiknivélin fundið út kjarasamning og reiknað út nákvæm laun til samanburðar við útgefin launaseðil frá vinnuveitanda.“
Reiknivél Iðnaðarmanna var opnuð í lok árs 2019 en reiknivél SGS í nóvember 2020.

Eins og vísindaskáldskapur
Baldvin segir hugmyndina að „reikna laun“ hnappinum í Curio App hafa fæðst þegar teymi frá UX Design var að hanna eina af reiknivélunum fyrir stéttarfélögin.
Í einu hléinu sem tekið var yfir daginn, spunnust óvæntar umræður um það hvort möguleiki væri á að setja inn takka í Curio appið sem gæti reiknað út laun miðað við reiknireglur kjarasamninga, vinnutíma og fleira.
„Einhverjum í vinnuhópnum fannst þetta nú frekar fjarlæg hugmynd enda langt í land með að smíða fullkomna launareiknivél sem átti að vera fyrir félagsmenn á netinu og hvað þá að bæta við tímaskráningarforriti í appi sem væri tengt reiknivélinni,“ segir Baldvin og bætir við:
Menn sögðu að „Einn takki til að sjá rétt laun” væri nánast eins og vísindaskáldskapur miðað við flækjustigið sem var framundan í smíðinni og meira að segja þrælvanir bókarar væru oft í vandræðum með útreikning launa í öllum þessum flóknu kjarasamningum sem eru í gildi á hverjum tíma og frekar ósennilegt að tímaskráninga-app gæti gert útreikning launa með einum hnappi.“
Baldvin segist samt strax hafa hugsað sem svo, að miðað við þá tækni og þekkingu sem hugbúnaðarfyrirtæki eins og þeirra búa yfir í dag og útfærslan sem framundan var á reiknivélinni, gæti þetta þó verið raunhæf hugmynd.
Fyrst var þó að sannfæra stéttarfélögin og segir Baldvin Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði hafa riðið á vaðið og gert við UX Design fyrsta samninginn.
Þá hefur Stéttarfélagið Aldan á Sauðárkróki einnig óskað eftir aðgangi fyrir sína félagsmenn um samskonar útfærslu á appinu.
„Hlíf telur að miðað þróun og aukin notkun á snjalltækjum þá sé Curio App framtíðin því auðvelt er nú fyrir þá sem vilja sjá hvað þeir eiga að fá í laun að nota appið fyrir tímaskráningu vinnustunda og smella svo á takkann reikna laun til að sjá það sem þeir eiga að fá útborgað,“ segir Baldvin.
Í dag geta félagsmenn Hlífar halað niður ókeypis útgáfu af Curio App en í appinu er takki sem reiknar út nákvæm laun félagsmanns miðað við tímaskráningu í appinu og kjarasamning.
„Allar hækkanir í kjarasamning eru tengdar Curio Time App og ef eitthvað ber út af í útreikningi launa frá vinnuveitanda og í appinu þá getur félagsmaður haft samband við sitt stéttarfélag og fengið aðstoð í að fá leiðréttingu á útborguðum launum,“ segir Baldvin sem dæmi um það hagræði sem getur hlotist af appinu.
Aukið gagnsæi í launamálum
Að sögn Baldvins er nokkur munur á notendahópum, til dæmis miðað við aldur.

„Verkalýðsfélagið Hlíf hefur nú í undirbúning markaðsátak til að ná til yngri félagsmanna fyrir Curio App og reiknihnapp launa og gerir ráð fyrir að notkun á appinu muni aukast með ári hverju. Fleiri aðildarfélög innan SGS bíða nú eftir sínum aðgangi af Curio Time og Curio Time App og er unnið að frekari kynningu innan SGS á þessu fyrirbæri sem sumir af eldri kynslóðinni hristu hausinn yfir og töldu óframkvæmanlegt og vísindaskáldskap einn.“
Baldvin segir alla þróun þó miða við að notkun sé einföld og aðgengileg. Notendur þurfi til dæmis ekki að læra á tímastjórnunarkerfi eða kunna á slík forrit til að geta notað tímaskráninga appið og launareiknivélina.
„Curio App er því nánast eins og róbót í vinnu hjá þeim stéttarfélögum sem taka Curio Time App í sína þjónustu. Mikill vinnusparnaður næst fyrir starfsmenn stéttarfélaga og aukin þjónusta fyrir félagsmenn næst með því að bjóða þessa lausn en sumir segja stéttarfélagið virki stundum eins og bókhaldsskrifstofa því svo mikið er um útreikninga á launum og þá sérstaklega eftir að hækkanir eða breytingar koma inn í samninga,“ segir Baldvin og bætir við:
Ég tel að í framtíðinni mun verða meira af gagnsæi í launamálum og öll óvissa um útborguð laun verður úr sögunni fyrir þá sem skrá tíma sína í app eins og Curio Time Appið.“