Fyrsta þrennan í úrslitakeppninni í meira en fjögur ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2021 10:31 Ægir Þór Steinarsson var frábær í fyrsta leiknum í Þorlákshöfn og endaði með með þrefalda tvennu, svokallaða þrennu. Vísir/Bára Stjörnumaðurinn Ægir Þór Steinarsson var í gærkvöldi með fyrstu þrennuna í úrslitakeppni karla í körfubolta síðan í marsmánuði 2017.
Ægir fór fyrir Stjörnuliðinu sem vann 9 stiga sigur á Þór í Þorlákshöfn, 99-90, en Ægir endaði leikinn með 26 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar. Þetta er fyrsta þrennan í úrslitakeppninni síðan að Pavel Ermolinskij var með 10 stig, 15 fráköst og 10 stoðsendingar 21. mars 2017 í sigri KR á Þór Akureyri í þriðja leik liðanna í átta liða úrslitum. Það liðu því nákvæmlega 4 ár, 2 mánuðir og 10 dagar á milli þrenna í úrslitakeppninni eða alls 1532 dagar. Ægir er fyrsti leikmaður Stjörnunnar sem nær þrennu í úrslitakeppni. Ægir er líka aðeins fimmti íslenski leikmaðurinn til að ná þrennu í úrslitakeppni en hinir eru Pavel (6), Damon Johnson (2), Jakob Örn Sigurðarson (1) og Jón Axel Guðmundsson (1). Ægir átti magnað einvígi í átta liða úrslitunum á móti Grindavík þar sem hann var með 23,8 stig, 10,4 stoðsendingar og 5,8 fráköst að meðaltali í fimm leikjum. Hann fylgdi því eftir með frábærum fyrsta leik í undanúrslitunum. Ægir hefur náð einni annarri þrennu á Íslandsmótinu í vetur en hann var með 17 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar í sigri á Keflavík í lok janúar.
Dominos-deild karla Stjarnan Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira