Á miðnætti fóru fjöldatakmarkanir úr 50 í 150 manns. Markverðasta breytingin er sú að verulega er dregið úr kröfum um grímunotkun. Það er því ljóst að það mun lifna enn meira yfir skemmtanalífinu hér á landi.
HönnunarMars heppnaðist ótrúlega vel og voru yfir áttatíu viðburðir á dagskrá um helgina. Daði og Gagnið náðu næstbesta árangri Íslands í sögu keppninnar og bæði Rúrik og Natan Dagur komust áfram í sínum keppnum. Hér fyrir neðan má sjá brot af því sem birtist á Instagram síðustu daga.
Þórey Einarsdóttir stjórnandi HönnunarMars sýndi Elizu Reed forsetafrú nokkrar sýningar HönnunarMars.
Dóra Jóhannsdóttir leikkona fór ásamt flottum hópi í Sky Lagoon í tilefni þess að 15 ár eru síðan þau útskrifuðust frá leikaradeild LHÍ.
Fanney Ingvarsdóttir bloggari hélt skírn og barnaafmæli og birti fallegar ljósmyndir eftir Helga Ómars af fjölskyldunni.
Daði Freyr birti þessa dásamlegu mynd af þeim hjónunum eftir að þau höfðu endað í fjórða sæti í Eurovision í ár, þrátt fyrir að stíga ekki einu sinni á svið á lokakvöldinu.
Árný sagði svo frá því á Instagram í gær að hún hefur greinst með Covid. Hún á von á sínu öðru barni.
Eva Ruza og Svala Björgvins komu fram saman um helgina og skemmtu sér vel.
Nökkvi Fjalar og Athena Valý eru sæt saman.
Heimir og Sigurður náðu toppi Everest-fjalls um helgina.
Þórhildur Þorkelsdóttir fréttakona trúlofaðist barnsföður sínum Hjalta Harðarsyni. Þórhildur vann á dögunum Blaðamannaverðlaun ársins fyrir fréttatengd viðtöl þar sem sjónum er beint að einstaklingum í erfiðum aðstæðum. Hún birti fallega mynd af þeim og skrifaði í myndatextann meðal annars.
„Á afmælisdaginn bað hann mig að giftast sér og ég sagði já.“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kynnti sér íslenska hönnun á HönnunarMars.
Linda Pétursdóttir markþjálfi birti mynd af sér í náttúrulaug í fallegum rauðum sundbol.
Ágústa Eva og Gunni Hilmars héldu tónleika í Hörpu um helgina og fögnuðu útgáfu plötunnar sinnar á vínyl.
Nína Dögg og Gísli Örn áttu fullkomin dag á hestbaki.
Hanna Rún Bazev breytti til og krullaði á sér hárið.
Kristbjörg og Aron Einar fóru á rómantískt stefnumót.
Forsetahjónin tóku fallega sjálfsmynd við sólsetur í Skagafirði.
Gísli Marteinn skemmti sér vel í Ahoy höllinni í Rotterdam á Eurovision.
Ástrós naut lífsins í Bláa lóninu.
Inga Lind skellti sér í golf í fallega vorveðrinu.
Þórdís Valsdóttir útvarpskona í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni gekk á topp Hvannadalshnjúks um helgina.
Birgitta Haukdal birti rándýra Eurovision mynd af sér með Jóhönnu Guðrúnu, Gunna Óla og Kristjáni Gíslasyni.
Áhrifavaldurinn Tanja Ýr býr tímabundið á Miami og hefur það gott í sólinni.
Páll Óskar fagnaði innilega þegar stig Íslands voru tilkynnt í Eurovision og Daði og Gagnamagnið komust í fyrsta sætið um stund.
Berglind Festival lét sig ekki vanta á HönnunarMars hátíðina um helgina.
Stund milli stríða hjá Tómasi Guðbjartssyni lækni.
Unnur Eggertsdóttir leikkona fagnaði því að vera komin með bólusetningu.
Listakonan Rán Flygering gerði ótrúlega flotta teikningu af Eurovision hópnum okkar.
Brynja Dan tilkynnti um framboð og ræddi ástæðurnar fyrir því í einlægu helgarviðtali hér á Vísi.
Sigríður Margrét bloggari á Trendnet hoppaði á milli sýninga á HönnunarMars um helgina og kynnti sér það nýjasta í tísku og hönnun hér á landi.
Friðrik Ómar rifjaði upp skemmtilega minningu með Regínu Ósk í tilefni Eurovision.
Natan dagur heldur áfram að toppa sig í The Voice í Noregi og er kominn í úrslit keppninnar.
Pattra og Elmar njóta lífsins á Grikklandi.
Lína Birgitta fagnaði próflokum en hún var að ljúka fyrsta árinu í Háskólanum á Bifröst.
Rúrik Gíslason og Renata Luis dönsuðu sig inn í úrslitaþátt þýsku útgáfunnar af Allir geta dansað.