NBA dagsins: Tilþrifavörn Jokic á ögurstundu Sindri Sverrisson skrifar 29. apríl 2021 15:03 Nikola Jokic tryggði Denver Nuggets sigur í nótt. AP/David Zalubowski Zion Williamson virtist vera að tryggja New Orleans Pelicans framlengingu gegn Denver Nuggets þegar Nikola Jokic hóf sig á loft og þverneitaði honum um það með rosalegri vörslu.
Tilþrif Jokic eru meðal þess sem sjá má í NBA dagsins hér á Vísi. Auk sigurs Denver er þar afar mikilvægur 120-111 sigur Boston Celtics á Charlotte Hornets, og sigur New York Knicks sem kom sér aftur á rétta braut með því að vinna Chicago Bulls 113-94. Klippa: NBA dagsins 29. apríl „Hann [Williamson] ætlaði að troða og ég ætlaði að gera honum það erfitt. Ég reyndi að snerta bara boltann,“ sagði Jokic um lokasekúndurnar í sigri Denver. Hann skoraði 32 stig og kom í veg fyrir að Denver kastaði endanlega frá sér fínu forskoti. Denver er í 4. sæti vesturdeildar og getur jafnað LA Clippers að stigum með því að vinna báða leikina sem liðið á inni. Pelíkanarnir þurfa hins vegar kraftaverk til að komast í úrslitakeppnina því þeir eru nú með fjórum töpum meira en Golden State Warriors sem eru í 10. sæti. Boston er réttu megin við strikið í austurdeild en með jafnmörg stig og Miami Heat. Sigurinn í nótt var lífsnauðsynlegur því annars hefði liðið farið niður í 7. sæti, og verið með jafnmörg töp og Charlotte sem er í 8. sætinu. Knicks eru komnir aftur á sigurbraut og spurning hvort þeir nái níu sigrum í röð aftur en þeir eru í það minnsta með tveimur töpum minna en Boston. Knicks unnu Chicago Bulls 113-94 og þar með eru Bulls í erfiðri stöðu í 11. sæti austurdeildar, með tveimur töpum meira en Washington Wizards. Liðin í 7.-10. sæti komast í umspil um sæti í úrslitakeppninni og nú eiga liðin um 10 leiki eftir hvert.
NBA Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Fleiri fréttir „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Sjá meira