Sólirnar sigu loks til viðar eftir mikinn hita Sindri Sverrisson skrifar 9. apríl 2021 07:31 Jae Crowder kemur skilaboðum til dómara eftir brot Patricks Beverley á Chris Paul. Beverley var rekinn af velli en mikill hiti var í leiknum. AP/Marcio Jose Sanchez Sjö leikja sigurgöngu Phoenix Suns lauk í Los Angeles í nótt þegar liðið tapaði 113-103 fyrir LA Clippers í NBA-deildinni í körfubolta. Paul George og Kawhi Leonard skoruðu samtals 60 stig í leiknum. Phoenix vann Utah Jazz í framlengdum leik í fyrrinótt en náði ekki að fylgja því eftir. Utah vann Portland Trail Blazers, 122-103, í nótt og er nú með sterkari stöðu á toppi vesturdeildarinnar. Utah (39 sigrar/13 töp) er efst, Phoenix (36/15) í 2. sæti og Clippers (35/18) í 3. sæti. 33 PTS, 7 3PM for Paul George in the @LAClippers W! pic.twitter.com/bfKg2Lshyz— NBA (@NBA) April 9, 2021 Það var mikill hiti í leiknum í Los Angeles þar sem þrjár tæknivillur og tvær óíþróttamannslegar villur voru gefnar á síðustu 24 mínútunum, og tveimur leikmönnum, Patrick Beverley og Marcus Morris Sr., vikið af velli. Clippers voru átta stigum undir í þriðja leikhluta en náðu að koma sér yfir fyrir lok hans, í 83-81. Heimamenn náðu svo mest 16 stiga forskoti í fjórða leikhlutanum. George skoraði 33 stig fyrir þá í leiknum og Leonard 27. Úrslit næturinnar:
Phoenix vann Utah Jazz í framlengdum leik í fyrrinótt en náði ekki að fylgja því eftir. Utah vann Portland Trail Blazers, 122-103, í nótt og er nú með sterkari stöðu á toppi vesturdeildarinnar. Utah (39 sigrar/13 töp) er efst, Phoenix (36/15) í 2. sæti og Clippers (35/18) í 3. sæti. 33 PTS, 7 3PM for Paul George in the @LAClippers W! pic.twitter.com/bfKg2Lshyz— NBA (@NBA) April 9, 2021 Það var mikill hiti í leiknum í Los Angeles þar sem þrjár tæknivillur og tvær óíþróttamannslegar villur voru gefnar á síðustu 24 mínútunum, og tveimur leikmönnum, Patrick Beverley og Marcus Morris Sr., vikið af velli. Clippers voru átta stigum undir í þriðja leikhluta en náðu að koma sér yfir fyrir lok hans, í 83-81. Heimamenn náðu svo mest 16 stiga forskoti í fjórða leikhlutanum. George skoraði 33 stig fyrir þá í leiknum og Leonard 27. Úrslit næturinnar: Toronto 113-122 Chicago Miami 110-104 LA Lakers Oklahoma 102-129 Cleveland Dallas 116-101 Milwaukee Utah 122-103 Portland LA Clippers 113-103 Phoenix Sacramento 101-113 Detroit NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Toronto 113-122 Chicago Miami 110-104 LA Lakers Oklahoma 102-129 Cleveland Dallas 116-101 Milwaukee Utah 122-103 Portland LA Clippers 113-103 Phoenix Sacramento 101-113 Detroit
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Í beinni: Liverpool - Bournemouth | Misstígur Liverpool sig aftur? Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira