Atvinnulífið á Vísi fjallaði um viðurkenningarhátíðina á dögunum og var streymt frá hátíðinni sjálfri á Vísi. Þau fyrirtæki sem hlutu viðurkenninguna Bestu íslensku vörumerkin 2020 voru:
- 66°Norður í flokknum Einstaklingsmarkaður, fleiri en 50 starfsmenn
- Omnom í flokknum Einstaklingsmarkaður, færri en 50 starfsmenn
- Meniga í flokknum Fyrirtækjamarkaður, fleiri en 50 starfsmenn
- Alfreð í flokknum Fyrirtækjamarkaður, færri en 50 starfsmenn
Hátíðin var haldin í forsvari brandr en í samstarfi við fjölmarga í atvinnulífinu og úr fræðimannasamfélaginu. Í lok hátíðarinnar ræddi Friðrik Larsen, framkvæmdastjóri brandr og dósent við HÍ, við viðurkenningarhafa.
Friðrik spurði viðurkenningarhafa meðal annars um það, hvers vegna vörumerkin þeirra ættu skilið viðurkenningu sem þessa?
Halldór Friðrik Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Alfreð, sagði vörumerkið þeirra vel að viðurkenningunni komið enda væri Alfreð ungt fyrirtæki, stofnað árið 2013 og nánast arðbært frá fyrsta ári. Þá benti Halldór á að hugmyndin að ráðningaappinu Alfreð væri alíslenskt hugvit sem ætti sér enga erlenda fyrirmynd.
Viggó Ásgeirsson framkvæmdastjóri Viðskipta hjá Meniga sagði starfsfólkið fyrst og fremst eiga viðurkenninguna skilið. Hann sagði flott teymi hjá Meniga vinna að því alla daga að skapa vörumerkinu sess á alþjóða markaði. Þó ávallt þannig að Ísland nyti góðs af því líka. Þannig væri Ísland í raun tilrauna-markaður fyrir Meniga og því gaman að fá svona viðurkenningu.
Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Omnom, sagði að frá upphafi hafi fyrirtækið lagt áherslu á að vörumerkið skapi viðskiptavinum tilfinningu um „upplifun.“ Óskar viðurkenndi að við stofnun Omnom hafi þekkingin á því hvernig best væri að hanna eða standa að góðu vörumerki ekki verið til staðar innan teymisins. Stofnendur hefðu þó alltaf haft sterka sannfæringu fyrir því að vörumerkið myndi skipta miklu máli fyrir það hvernig reksturinn myndi ganga. Því hefði verið lögð mikil vinna í hönnun vörumerkisins, strax í upphafi.
Helgi Rúnar Óskarsson forstjóri 66°Norður sagði það að byggja upp vörumerki væri mikið langhlaup. Fyrirtækið ætti aðeins fimm ár í að fagna 100 ára afmæli sínu og því mætti segja að með viðurkenningunni væri þrautseigja og mikil vinna síðustu áratugina að skila sér. Af því tilefni sagðist Helgi vilja þakka samstilltum hópi fólks sem hefði lagt sitt á vogarskálarnar, alltaf lagt áherslu á vörumerkið og verið góðir talsmenn þess.

Ekki nóg að mæta fínn í partí
Eins og áður hefur komið fram, voru veittar viðurkenningar fyrir vörumerki sem starfa annars vegar á einstaklingsmarkaði en hins vegar á fyrirtækjamarkaði. Viðurkenningarhafar játuðu að mikill munur væri á þessum markhópum. Þó mætti ekki mistúlka fyrirtækjamarkaðinn þannig að hann gengi aðeins út á að hringja í viðskiptavini, án þess að huga að vörumerkinu eða markaðsmálum.
Halldór Friðrik sagði sem dæmi mjög ólíkt með hvaða hætti áherslur þyrftu að vera, þegar verið væri að koma réttum skilaboðum áleiðis til ólíkra fyrirtækja. Viðskiptavinir á fyrirtækjamarkaði gætu verið mjög ólík í stærðum og því skipti máli að vörumerki höfði til sem flestra.
Þá sagði Viggó hjá Meniga traust skipta gífurlega miklu máli. Í þeirra tilfelli væri varan í raun ókeypis fyrir almenning en þess eðlis að hún þyrfti stanslaust að vera að sanna sig og ávinna sér traust.
Óskar sagði það hafa tekið Omnom um sex ár að fara að uppskera erfiðið sem fólst í því að kynna nýja vöru á markað. Nú séu neytendur hins vegar farnir að treysta vörumerkinu og hjá þeim sé áherslan sú að verja frekar tíma og peningum í vörumerkið frekar en auglýsingaherferðir.
„Þetta snýst í lok dagsins alltaf um vörumerkin“ sagði Helgi Rúnar og benti á hvernig öll starfsemin á endanum þarf að smella saman þannig að hún eigi við um vörumerkið.
Sem samlíkingu benti Helgi á að það væri ekki nóg fyrir einstakling að klæða sig í fín föt og mæta í partí, en hegða sér síðan þar eins og vitleysingur.
Það sama á við um vörumerkin, það þarf allt að passa saman í eina heilsteypta mynd.

Góðu ráðin
Loks spurði Friðrik viðurkenningarhafa, hvaða ráð þeir myndu veita fyrirtækjum sem eru að vanrækja vörumerkin sín. Við heyrum hvaða góðu ráð viðurkenningarhafar vörumerkjanna 2020 hafa að segja.
Óskar, Omnom: „Það er verðmætara að eiga gott vörumerki en góðar vélar.““
Halldór Friðrik, Alfreð: „Vörumerki er heildin, vörumerkið er allt fyrirtækið. Ef þú ert farinn að vanrækja það þá ertu farin að grafa undan þér.“
Viggó, Meniga: „Það er eins og að vanrækja ungmennastarfið í íþróttum, þú verður að byggja undir til að ná árangri til framtíðar. Við ættum ekki landslið í íþróttum eða landslið í tónlist heldur ef við hefðum ekki lagt áherslu á ungmennastarfið.“
Helgi, 66 Norður: „Þetta snýst fyrst og fremst um að byggja upp samband við viðskiptavini og ef þú ert með sterkt vörumerki myndast einstakt samband sem erfitt er að rifta og fyrir samkeppnina að komast í á milli. Ef vel tekst til er þetta samband þétt og náið, það myndast traust á milli viðskiptavina og fyrirtækis þannig að það vari til langs tíma.“