Mótmæltu fyrirhuguðum bólusetningum Sylvía Hall skrifar 20. febrúar 2021 23:19 Mótmælin fóru fram í nokkrum borgum í Ástralíu í dag. Vildu sumir meina að þeir yrðu ekki þvingaðir í bólusetningu, sem er rétt þar sem enginn verður skyldaður til þess samkvæmt bólusetningaráætlun ástralskra yfirvalda. Getty/Luis Asuci Mótmælendur komu saman í borgum víða um Ástralíu í dag og mótmæltu bólusetningum gegn Covid-19, en stefnt er að því að hefja bólusetningar á mánudag með bóluefni Pfizer. Mótmælin voru að mestu friðsæl en nokkrir voru þó handteknir í Melbourne samkvæmt staðarmiðlum.
Mótmælin fóru einnig fram í stórborgum á borð við Sydney og Brisbane en talið er að nokkur þúsund hafi tekið þátt í mótmælunum á landsvísu. Frá mótmælunum í dag.Getty/Luis Asuci Á vef breska ríkisútvarpsins er haft eftir einum mótmælanda að hann segi yfirvöld ekki getað þvingað sig til að fara í bólusetningu, en samkvæmt áætlunum þar í landi er ekki skylda að fara í bólusetningu þó hún sé gjaldfrjáls. Um 700 þúsund framlínustarfsmenn eru í fyrsta forgangshópi, þar á meðal heilbrigðisstarfsmenn, starfsmenn á hjúkrunarheimilum og þeir sem starfa við landamæraeftirlit. Stefnt er að því að fjórar milljónir verði búnar að fá bóluefni snemma í mars. Alls hafa tæplega 29 þúsund greinst með veiruna í Ástralíu frá því að faraldurinn hófst og um 900 látist af völdum hennar.
Ástralía Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Innlent Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Sjá meira