Maður á reynslulausn handtekinn fyrir búðarhnupl Atli Ísleifsson skrifar 20. janúar 2021 07:22 Tilkynningin um búðarþjófnaðinn kom á borð lögreglu klukkan 17:50 í gær. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann eftir að tilkynnt var um þjófnað úr verslun í hverfi 101 í Reykjavík. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maður í annarlegu ástandi hafi þar verið staðinn að því að stela vörum.
Maðurinn reyndist vera á reynslulausn og má því ekki neyta fíkniefna. Hann var handtekinn og vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu. Nokkru fyrir klukkan 20 var svo tilkynnt um annað þjófnaðarmál, í þetta skiptið í verslun í hverfi 105. Þar voru tvær konur staðnar að þjófnaði á matvöru. Þær voru færðar á lögreglustöð og tekin af þeim skýrsla og voru þær síðan lausar. Á fjórða tímanum í nótt var svo tilkynnt um eignarspjöll í verslun í hverfi 101 í Reykjavík. „Ógnandi viðskiptavinur hendir vörum um öll gólf verslunarinnar. Maðurinn var farinn af vettvangi er lögregla kom en fannst skömmu síðar. Maðurinn var í annarlegu ástandi og vildi ekkert tjá sig um það sem gerðist. Upplýsingar um manninn liggja fyrir ef verslunin kærir eignaspjöllin.“ Stakk af vettvangi Þá segir frá því að um klukkan fjögur í nótt hafi verið tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 110 í Reykjavík þar sem ökumaður hafi stungið af vettvangi. Hann var þó handtekinn skömmu síðar og er grunaður um ölvun við akstur. Þó sagðist þá hafa neytt áfengis eftir að akstrinum lauk og var hann færður í sýnatöku og síðan vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Loks segir frá því að lögregla hafi haft afskipti af nokkrum ökumönnum sem grunaður eru um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Þrettán þúsund hafa skrifað undir Innlent Fleiri fréttir Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Sjá meira