Viðskipti innlent

Ró­legra yfir leigu­markaðnum en í­búða­markaðnum á tímum far­aldurs

Eiður Þór Árnason skrifar
Heimsfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á húsnæðismarkaðinn. 
Heimsfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á húsnæðismarkaðinn.  Vísir/Vilhelm

Á sama tíma og íbúðaverð tók að hækka í kjölfar vaxtalækkana á seinni hluta síðasta árs hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu að jafnaði staðið í stað. Frá janúar og fram í maí mældist lækkun milli mánaða samkvæmt nýþinglýstum leigusamningum en síðan tók við lítils háttar hækkun milli mánaða fram að október þegar verð tók að lækka.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans en 0,7% hækkun mældist á leiguverði milli mánaða í nóvember. Tölur desembermánaðar liggja ekki enn fyrir. Að sögn hagfræðideildar bankans var almennt talsvert rólegra yfir leigumarkaðnum en íbúðamarkaðnum eftir að áhrifa heimsfaraldurs Covid-19 fór að gæta hér á landi. Sé litið til 12 mánaða hækkunar sést að frá því í mars hefur hækkun íbúðaverðs mælst ofar sambærilegum hækkunum á leiguverði og hefur munurinn aukist.

Áhrif faraldursins dregið úr verðþrýstingi

„Veirufaraldurinn hefur haft tvíþætt áhrif á leigumarkaðinn í það minnsta. Fyrir það fyrsta hafa vextir lækkað sem viðbragð við þeirri kreppu sem faraldurinn orsakaði. Það hefur auðveldað fasteignakaup og þar með hugsanlega dregið úr eftirspurn eftir húsnæði til leigu. Faraldurinn hefur einnig gert það að verkum að ferðamönnum fækkaði verulega og mikill fjöldi Airbnb íbúða fékk annars konar notkun,“ segir í Hagsjá Landsbankans.

Aukið framboð og minni eftirspurn eftir leiguhúsnæði hafi því verulega dregið úr verðþrýstingi á leigumarkaði.

Fleiri í eigin húsnæði

Fram kemur í niðurstöðum könnunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að 19% leigjenda telji framboð leiguhúsnæðis sem hentar sér og sinni fjölskyldu vera mjög eða frekar mikið, samanborið við 12% fyrir ári síðan. Einnig má þar greina hlutfallslega aukningu meðal leigjenda sem átti auðvelt með að útvega sér leiguhúsnæði. Hlutfallið er nú um 52% en var 48% fyrir ári síðan. Er þetta vísbending um að framboð á leiguhúsnæði hafi aukist.

„Tæplega 13% einstaklinga 18 ára og eldri eru nú á leigumarkaði samkvæmt rannsóknum HMS samanborið við tæp 17% áður en faraldurinn hófst. Hlutfall fólks sem býr í eigin húsnæði hefur hækkað úr 70% fyrir útbreiðslu faraldursins í 73%. Þetta bendir til þess að leigjendum hafi mörgum gefist kostur á að kaupa sér fasteign á síðustu mánuðum,“ segir í Hagsjá Landsbankans.

Þar segir einnig að óljóst sé hvort um varanlega breytingu sé að ræða á leigumarkaðnum. Þó telur hagfræðideildin líklegt að leigjendur muni áfram streyma í eigið húsnæði á næstu árum, meðal annars með með stuðningi frá stjórnvöldum í gegnum hlutdeildarlán.


Tengdar fréttir

Fagnar því að vera laus af leigumarkaðnum

Fyrstu hlutdeildarlánunum var úthlutað í dag en þeim er ætlað að aðstoða tekjulága við að kaupa sína fyrstu fasteign. Fyrsti lántakandinn fagnar því að vera loks laus af leigumarkaði og segir þetta mikið gæfuspor fyrir fjölskyldu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×