Eric Cantona er án efa ein af stóru goðsögnunum í sögu Manchester United og félagið hefur nú áhuga á því að fá hann aftur til að vinna fyrir félagið.
Eric Cantona er orðinn 53 ára gamall og er því ekki að fara að klæða sig aftur í sjöuna með kragann upp heldur er menn á Old Trafford spenntir fyrir því að fá hann inn sem sendiherra félagsins.
Daily Mirror segir frá þessu og það eru örugglega langflestir stuðningsmenn Manchester United sem fagna þessu.
Eric Cantona in line for sensational Man Utd return as Red Devils chiefs discuss idea - @johncrossmirror column https://t.co/spEgZ50q3l pic.twitter.com/fi5YKJx5Sr
— Mirror Football (@MirrorFootball) March 19, 2020
Gamlir leikmenn eins og Bryan Robson og Denis Irwin eru báðir starfandi sendiherrar Manchester United og koma þeir bæði fram fyrir hönd félagsins á samkomum en líka einir og sér.
Eric Cantona átti mögnuð ár hjá Manchester United á tíunda áratugnum og hefur síðan verið einn vinsælasti leikmaður félagsins. Cantona kom til United árið 1992 og á næstu fimm tímabilum vann félagið fjóra Englandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla.
United er náttúrulega með Ole Gunnar Solskjær sem knattspyrnustjóra og þá mætir Sir Alex Ferguson á alla heimaleiki. Sir Alex mætir líka við og við á æfingasvæðið. United hefur mikinn áhuga á því að tengja glæsta sögu félagsins við liðið í dag á meðan þeir leita leiða til að koma félaginu aftur í fremstu röð.
1993-94. Glorious scene including pitch invasion from jubilant and triumphant fans smothering Eric The King Cantona #MUFC pic.twitter.com/VzKH5RcmPg
— Stretford Enders (@StretfordEndrs) March 18, 2020
Eric Cantona er oft álitin vera bestu kaupin á löngum stjóraferli Sir Alex Ferguson en Manchester United hafði ekki orðið Englandsmeistari í 26 ár þegar Frakkinn öflugi mætti á Old Trafford í nóvember 1992.
Á fimm tímabilum með Cantona í sjöunni þá vann United fjóra Englandsmeistaratitla og sá eini sem rann þeim úr greipum var tímabilið þegar Cantona var dæmdur í átta mánaða bann fyrir karatesparkið fræga.
Cantona hætti hins vegar óvænt eftir 1996-97 tímabilið en hann var þá aðeins 31 ára og átti nóg eftir að mati flestra. Kappinn hefur síðan prófað ýmsa hluti síðan, bæði strandfótbolta og annað. Nú gæti hann mögulega verið tilbúinn að mæta aftur á Old Trafford.