Fengu óvart fimmfaldan skammt bóluefnis Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2020 13:04 Frá Stralsund. Íbúar bæjarins eru um 60 þúsund talsins. Getty Fjórir starfsmenn hjúkrunarheimilis í norðurhluta Þýskalands voru fluttir á sjúkrahús eftir að átta starfsmenn fengu fyrir mistök fimmfaldan, ráðlagðan skammt af bóluefni gegn Covid-19. Starfsmennirnir fjórir voru fluttir á sjúkrahús til að gæta allrar varúðar eftir að þeir fóru að finna fyrir flensulíkum einkennum.
Segja má að fjöldabólusetningin í Þýskalandi um helgina hafi þannig ekki farið hnökralaust af stað, en hjúkrunarheimilið sem um ræðir er að finna í borginni Stralsund, skammt frá Rostock, í Vorpommern-Rügen. Deutsche Welle segir frá því að starfsmennirnir átta – sjö konur og einn karl – séu á aldrinum 38 til 54 ára, og hafi fengið sprautu af BioNTech-Pfizer bóluefninu í gær. Stefan Kerth, æðsti embættismaður (þ. Landrat) í Vorpommern-Rügen, segist harma atvikið mjög og segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða. „Ég vonast til að hlutaðeigandi muni ekki upplifa neinar alvarlegar aukaverkanir.“ Yfirvöld í Vorpommern-Rügen hafa lagt áherslu á að BioNtech hafi gefið stærri skammta í fyrsta tilraunafasa bóluefnisins, án þess að nokkur alvarleg atvik hafi komið upp. Bólusetning gegn Covid-19 hófst í Þýskalandi og öðrum aðildarríkjum ESB um helgina.
Þýskaland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Innlent Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu Innlent Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Ringulreið á lánamarkaði Innlent „Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Innlent Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Innlent Risavaxin mörgæs slær í gegn Erlent Efna til söfnunar fyrir móður Kolfinnu Eldeyjar Innlent Fleiri fréttir Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Risavaxin mörgæs slær í gegn Um 500 látin í árásum Ísraela á Líbanon Ætlaði sér að ráða Trump af dögum Fólk flýr Beirút undan mannskæðum árásum Ísraela Selenskíj heimsótti lykilríki og þakkaði fyrir vopnin Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann Fimmtán á sjúkrahús eftir lestarslys í Svíþjóð Starfsmenn flýja framboð Robinson eftir „svartur nasisti“-hneykslið Fjórir myrtir og fjöldi særður eftir skotárás í Alabama Ísraelar ráðast í umfangsmiklar loftárásir og hvetja íbúa til að flýja Rússar gerðir afturreka með óvæntar tillögur á allsherjarþingi SÞ Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Sjá meira