Logi mun stýra Pepsi Max deildarliði FH ásamt Davíð Þór Viðarssyni næsta sumar. Davíð Þór átti upphaflega að vera aðstoðarmaður Eiðs Smára Guðjohnsen sem var í dag ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari og gat því ekki haldið áfram starfi sínu í Kaplakrika.
Logi átti að vera tæknilegur ráðgjafi í Kaplakrika en hefur nú tekið við keflinu sem þjálfari félagsins. Viðtal við Loga má sjá í spilaranum hér neðst í fréttinni.
Hinn 66 ára gamli Logi stýrði FH með Eið Smára sér við hlið á síðustu leiktíð. Undir stjórn Loga og Eiðs – sem tóku við um miðjan júlí – vann FH tíu af fjórtán leikjum sínum í deildinni.
„Vonandi getum við fengið að halda þessu gangandi allan tímann, frá upphafi til enda og veiran sé ekkert að stríða okkur. Við erum með góðan mannskap, skemmtilegan hóp og lið sem ég þekki mjög vel svo þetta var tiltölulega einföld ákvörðun fyrir mig.“
„Tvímælalaust, hann er náttúrulega mjög góður fótboltamaður. Gerði það áður en hann fór og hefur staðið sig með miklum ágætum í Noregi, hvar sem hann hefur verið. Bæði í Start, Rosenborg og nú síðast Vålerenga. Hann verður gríðarlega mikill fengur fyrir leikið, ekki síst sem persónuleiki,“ sagði Logi aðspurður um endurkomu Matthías Vilhjálmssonar í FH-liðið.
„Það er aldursbreidd, ungir menn og eldri menn,“ sagði Logi og glotti er breidd FH – eða skortur á breidd réttara sagt – var rætt.
„Það eru einhverjir horfnir á braut og við vinnum í þeim málum að bæta við [leikmönnum]. Við þurfum eitthvað að bæta við okkur, það er alveg ljóst. Við þurfum að vera með meiri breidd ef við ætlum að vera algjörlega þarna uppi,“ sagði Logi að lokum.