Viðskipti innlent

Stærsta „Covid-þrotið“ til þessa skekur Bretland

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Topshop var um skeið rekið á Íslandi.
Topshop var um skeið rekið á Íslandi. Vísir/getty

Breska eignarhaldsfélagið Arcadia Group, sem rekur m.a. fataverslanirnar Topshop, Topman og Miss Selfridge, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Breskir fjölmiðlar segja þrotið hið stærsta í bresku efnahagslífi af völdum kórónuveirufaraldursins til þessa.

Um þrettán þúsund starfsmenn Arcadia eiga nú á hættu að missa vinnuna. Engum verður þó sagt upp að svo stöddu og rekstur Arcadia-verslananna heldur áfram á meðan leitað er að kaupendum.

Haft er eftir Ian Grabiner, framkvæmdastjóra Arcadia, að dagurinn í dag sé mikill sorgardagur fyrir starfsmenn, birgja og hluthafa félagsins. Kórónuveirufaraldurinn og tilheyrandi lokun verslana hafi verið reiðarslag fyrir reksturinn. Að endingu hafi hindranirnar af völdum faraldursins borið reksturinn ofurliði.

Sir Philip Green.Vísir/getty

Fram kemur í frétt Guardian að yfirvofandi gjaldþrot Arcadia sé stærsta þrotið af völdum faraldursins í bresku efnahagslífi til þessa; „sem og enn eitt áfall breskrar tískuvöruverslunar, sem þegar stóð völtum fótum“. 

Þá er haft eftir greinendum í frétt Guardian að Arcadia-merki á borð við Topshop og Topman muni líklega höfða til kaupenda en erfitt geti reynst að selja önnur merki félagsins. Tíu áhugasamir kaupendur Topshop hafa þannig þegar verið nefndir til sögunnar.

Arcadia rekur um 450 verslanir á Bretlandseyjum og 22 utan Bretlands, auk fjölda útibúa í verslunarmiðstöðvum og stórmörkuðum. Nokkrar verslanir undir þeirra merkjum voru reknar hér á landi um skeið, til að mynda áðurnefnd Topshop.

Eigandi félagsins, Sir Philip Green, hefur verið umsvifamikill í bresku viðskiptalífi, einkum á sviði tískuvöruverslunar. Hann á jafnframt talsverð tengsl við Ísland, einkum í gegnum félagið Baug Group og umsvif þess á tískuvörumarkaði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×