Innlent

Boðað til fundar í aðdraganda þyrlulausra daga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá samningafundur ríkisins og flugvirkja Landhelgisgæslunnar á mánudag.
Frá samningafundur ríkisins og flugvirkja Landhelgisgæslunnar á mánudag. Vísir/Vilhelm

Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni við ríkið klukkan fjögur í dag. Fundinum er áætlaður einn og hálfur tími samkvæmt dagskrá á vef Ríkissáttasemjara.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu var það Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari sem hafði frumkvæði að boðun fundarins eftir að hafa rætt við formenn samninganefndar Flugvirkjafélags Íslands og ríkisins. Síðast var fundað í deilunni á mánudag en verkfall hefur staðið yfir frá 5. nóvember.

Landhelgisgæslan er með þrjár þyrlur á sínum snærum. TF Líf, Gró og Eir. Líf og Eir hafa verið óhreifðar síðan verkfallið hófst. Líf hefur verið í viðhaldi lengi og stendur til að selja hana. Eir var í viðhaldsskoðun þegar verkfallið skall á. Á miðnætti í kvöld þarf Gró að fara í viðhald vegna uppsafnaðs flugtíma.

Þyrlan úr leik næstu tvo daga

Spilmenn hjá Landhelgisgæslunni eru jafnframt flugvirkjar munu sinna viðhaldi á Gró. Þeir tilheyra þyrluáhöfninni og því undanþegnir verkfalli. Úttekt á vélinni tekur alla jafna tvo sólarhringa og því verður engin þyrla laus í útköll í tvo sólarhringa frá miðnætti. Jafnvel þótt samningar næðust í dag er ljóst að þyrlan yrði ekki til taks. Væru flugvirkjar ekki í verkfalli væri hins vegar viðhaldi á Eir lokið og sú þyrla til taks.

Jarðvísindamenn, Vestmannaeyingar, sjómenn, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, sjómenn, vélstjórar og málmtækimenn eru á meðal þeirra sem lýst hafa yfir miklum áhyggjum af yfirstandandi vinnustöðvun flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands og þeirra áhrifa sem það hefur á öryggi landsmanna, hvort sem er á sjó eða landi. Þrjú félög sjómanna- og vélstjóra segja Landhelgisgæsluna hafa sýnt flugvirkjum mikla vanvirðingu.

Mikil samstaða er meðal flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni um verkfallsaðgerðir. Þannig samþykktu 14 af 18 verkfallsaðgerðir, tveir voru á móti og tveir tóku ekki afstöðu. Flugvirkjum hjá Landhelgisgæslunni lýst ekki á að skorið verði á tengsl kjarasamnings þeirra hjá Landhelgisgæslunni við aðalkjarasamning Flugvirkjafélags Íslands, sem er við SA og Icelandair.

Tæplega 1,8 milljón á mánuði

„Aðalkjarasamningur Flugvirkjafélagsins er sniðin að störfum flugvirkja og hann hefur þróast í 50 ár með störfum flugvirkja. Samningurinn sem liggur á borðin af hálfu ríkisins er ekki slíkur samningur. Hann byggir ekki á sömu ákvæðum og greinum sem við þurfum í okkar umhverfi,“ sagði Guðmundur Úlfar Jónsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, í samtali við Spegilinn í gær.

Meðalheildarlaun flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni voru í fyrra 1.764.291 kr. á mánuði að því er fram kom í skriflegu svari Landhelgisgæslunnar til fréttastofu.

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hefur kallað eftir því að menn sýni ábyrgð í viðræðum.

„Þetta er fyrst og fremst erfitt þar sem um er að ræða neyðarþjónustu og þetta getur verið spursmál um mannslíf. Ég vona bara að menn sýni ábyrgð og geri sér grein fyrir þeim skyldum sem á þeim hvíla gagnvart þjóðinni allri, sér í lagi eins og ástandið er núna,“ sagði Georg.


Tengdar fréttir

Segja Landhelgisgæsluna hafa sýnt flugvirkjum „mikla vanvirðingu“

Jarðvísindamenn, Vestmannaeyingar, sjómenn, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, sjómenn, vélstjórar og málmtækimenn eru á meðal þeirra sem lýst hafa yfir miklum áhyggjum af yfirstandandi vinnustöðvun flugvirkja hjá Landhelgisgæslu Íslands

Lög á verkfall flugvirkja ekki til umræðu

Dómsmálaráðherra ræddi vinnustöðvun flugvirkja hjá Landhelgisgæslunni á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Engin ákvörðun hefur verið tekin um framhaldið en ráðherra hyggur á fund með Landhelgisgæslunni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×