Zlatan styrkti stöðu AC Milan á toppnum og fór meiddur útaf Arnar Geir Halldórsson skrifar 22. nóvember 2020 21:45 Zlatan stangar boltann í netið vísir/Getty Zlatan Ibrahimovic var maðurinn í Napoli í kvöld þegar AC Milan sótti þrjú stig í greipar heimamanna í toppslag ítölsku úrvalsdeildarinnar. Hinn 39 ára gamli Zlatan kom AC Milan í 2-0 með mörkum á 20. og 54.mínútu en Dries Mertens minnkaði muninn á 63.mínútu. Tiemoue Bakayoko fékk að líta sitt annað gula spjald skömmu síðar sem gerði lokakaflann erfiðari fyrir heimamenn. Hins vegar varð AC Milan fyrir stærra áfalli á 79.mínútu þegar Zlatan virtist togna aftan í læri og þurfti því að fara af velli. Án Zlatan var það norska ungstirnið Jens Petter Hauge sem steig upp og gulltryggði sigur AC Milan með marki í uppbótartíma. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn