Genúa liðin Sampdoria og Genoa skyldu jöfn 1-1 í kvöld. Líkt og vanalega var hart barist í leik þessara nágrannaliða.
Líkt og oft áður var meira um tæklingar og spjöld heldu ren fína drætti þegar þessi lið mætast. Alls fóru sex spjöld á loft í kvöld.
Jakub Jankto kom Sampdoria yfir með glæsilegu marki um miðbik fyrri hálfleiks. Aðeins fimm mínútum síðar hafði Gianluca Scamacca jafnað metin fyrir Genoa.
Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur því 1-1 í þessum mikla nágrannaslag.
Sampdoria er með 10 stig þegar að sex umferðum er lokið. Genoa er hins vegar fimm stig og eiga leik til góða.