Við þurfum að tala um Vestfirði Guðmundur Gunnarsson skrifar 29. október 2020 09:00 Samanlögð rekstrarniðurstaða allra sveitarfélaga á Vestfjörðum á síðasta ári var 155 milljónir í mínus. Ef við bætum hliðarrekstri, eins og hafnarstarfsemi, við þá hoppar talan upp í 191 milljón í plús. Það segir reyndar ekki alla söguna því það er í raun bara afkoma Ísafjarðarhafnar sem veldur því að niðurstaðan lafir fyrir ofan núllið. Sú afkoma mun hverfa á þessu ári. Ef Ísafjarðarbær er tekinn út fyrir sviga þá er samanlögð rekstrarniðurstaða vestfirskra sveitarfélaga, að öllu meðtöldu, 50 milljónir í mínus. Þetta var staðan í árslok 2019. Í bullandi góðæri. Áður en heimsfaraldur og kreppa skall á. Vestfirðir lafa þannig með höfuðið hálft í kafi. Fjárhagslega. Að öðru leyti standa Vestfirðir keikir. Beinir í baki og moldríkir af náttúru og menningu. Vestfirðingar hafa alltaf haft burði til að vaxa og dafna. Þeir þurfa bara að átta sig á hvað þarf til. Þegar sveitarfélög í varnarbaráttu horfa fram á annað eins tekjufall og nú blasir við þá dugar ekki sitja áfram mosagróinn á sama steininum. Stefni menn á eitthvað metnaðarfyllra en rétt halda lífi, þá verða forsvarsmenn sveitarfélaganna að grípa til róttækari aðgerða en þeir hafa hingað til treyst sér til að gera. Sameina krafta sína. Það þýðir ekkert að stinga höfðinu endalaust í sílóið, taka höggið af hverri kreppunni á fætur annari og verja svo árunum þess á milli í að krafsa sig upp á augnlokunum. Ætli fjórðungurinn sér að verða eitthvað þegar hann verður stór þá þarf hann að horfast í augu við staðreyndir. Blákaldur raunveruleikinn er sá að rekstur fjórðungsins gengur ekki upp í núverandi mynd. Það er of mikil yfirbygging, of mikill tvíverknaður og of mikil stöðnun. Og síðast en ekki síst, alltof margir ósamstíga stjórnendur buslandi í alltof grunnu vatni. Betri samgöngur brúa bilið á milli samfélaganna. Landfræðilega. En það nýtist aldrei almennilega nema fólkið fylgi með. Þessi staða hefur bitnað á þjónustunni og fólkinu um árabil. Þetta vita Vestfirðingar. Nauðsynlegar fjárfestingar sitja á hakanum um allan fjórðung. Hús leka og götur molna í sundur. Mannauðurinn er vanræktur og tækifæri renna mönnum úr greipum. Þetta er ekki glæsileg lýsing, ég veit það, en staðan er einfaldlega sú að þegar níu mismunandi sveitarfélög hafa lokið við að nurla saman aurum til að halda úti lágmarks þjónustu þá eiga Vestfirðingar aldrei neitt eftir til að hlúa að fólkinu og fjórðungnum. Sækja fram. Það er svo óvestfirskt að geta ekki talað hreint út um hlutina. Eins og það sé eitthvað feimnismál að segja hlutina eins og þeir eru. Eða má það kannski bara ef maður hvíslar það nógu lágt ofan í hálsmálið? Hvísl sem svo hverfur út í norðanáttina á sameiginlegum fundum fjórðungsins. Ár eftir ár. Við getum til dæmis talað um fjölda sveitar-og bæjarstjóra ef við viljum rýna í yfirbyggingu. Allt saman mikið sómafólk sem vill fjórðungnum vel. En ég er handviss um að þau gætu nýtt reynslu sína og báráttuþrek betur í þágu Vestfjarða án þess að gegna öll sama starfinu. Ég þori að lofa því. Þeir eru sem sagt sjö, bæjarstjórarnir á Vestfjörðum. Í níu sveitarfélögum. Það þýðir að það er einn bæjarstjóri á hverja 1000 íbúa. Það er svona eins og það væru átján bæjarstjórar á Akureyri, 131 í Reykjavík og fimm bæjarstjórar í Klakksvík í Færeyjum. Þetta nær náttúrlega ekki nokkurri átt. Hin tvö sveitarfélögin á Vestfjörðum eru með starfandi oddvita í hlutastarfi en ég tel þá ekki með því öll svæði þurfa sína heimastjórn, sama hvað öllum sameiningum líður. Í laun þessara sjö bæjarstjóra fara á annað hundrað milljónir af sameiginlegum sjóðum Vestfirðinga á ári. Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að það er að minnsta kosti áttatíu milljónum of mikið fyrir ekki fjölmennari fjórðung. Hóflega reiknað. En þetta snýst ekki bara um bæjarstjórana. Það er líka alveg galið að reka níu mismunandi bæjarskrifstofur og kjósa samtals 53 fulltrúa til að fara með umboð fimm þúsund kosningabærra manna. Á meðan allir aðrir þjónustuþættir svelta. Væri ekki alveg borðleggjandi að byrja þarna? En þetta eru nú ekki stóru tölurnar, heyri ég einhvern segja. Það er alveg rétt. Þetta dugar engan veginn. Það þarf að reka alla þætti fjórðungsins betur. Sveitarfélögin verða að taka höndum saman og hætta að finna upp hjólið hvert í sínu horni. Bítast um brauðmolana. Hætta að elda sömu súpuna í níu hriplekum pottum. Það er engin skynsemi í þessari innbyrðis einangrunarstefnu sveitarfélaganna. Samstaða og samstarf er eina leiðin áfram ef við raunverulega viljum sjá fjórðunginn vaxa. Hvort sveitarfélögin verða eitt, tvö eða þrjú skiptir ekki öllu máli. Heila málið er að níu einingar er of mikið. Ég heyri marga af þessum 53 kjörnu fulltrúum færa fyrir því rök að sameiningar muni leiða til enn frekari einangrunar þorpanna. Sporin hræði í þeim efnum. Gott og vel, en þá er það líka undir þeim komið að standa betur að samstarfinu. Til þess eru þeir kjörnir. Fólkið fyrir vestan á skilið betri þjónustu og skynsamlegri fjármálastjórn. Vestfirðingar þurfa að læra af því sem aflaga hefur farið og horfa frekar til þess sem vel hefur verið gert. Grípa til aðgerða sem skila íbúunum raunverulegum umbótum. Það þarf að ráðast að rót vandans og hætta að stara inn í svartnættið. Hætta að rembast við að kenna klósettpappírnum um magakveisuna. Til þess þarf hugarfarsbreytingu og samstöðu á fleiri vígstöðvum en bara þegar fjórðungurinn fjargviðrast út í ríkisvaldið. Ég skal gefa ykkur eitt lítið dæmi um ríkjandi viðhorf fyrir vestan. Fyrir nokkrum árum komu sveitarstjórnarmenn á norðanverðum Vestfjörum saman til að ræða samstarf. Þar var farið yfir fjölmarga þætti sem gráupplagt væri að gera í sameiningu. Sorpmál, slökkvilið, hafnir, skóla og fleira. Allir voru sammála. Menn féllust í faðma og skáluðu fyrir nýjum tímum og auknu samstarfi sveitarfélaga. Dásamlega falleg stund. En hvað gerðist svo? Ekkert. Ekki nokkur skapaður hlutur. Orðin voru innantóm. Stöðnun er ekki lengur valkostur á Vestfjörðum. Það gengur ekki að sveitarfélög skili áætlun eftir áætlun, ár eftir ár, þar sem fé til raunverulegra fjárfestinga og uppbyggingar er af svo skornum skammti að það dugir varla fyrir hálfri gangstéttarhellu. Það hljóta allir að sjá. Að lokum vil ég taka það fram að ég er ekki í neinni persónulegri vegferð með því skrifa um þetta. Mínum tíma fyrir vestan er lokið. En hjarta mitt slær samt fyrir vestan. Þar eru mínar rætur. Ég skrifa þetta vegna þess að ég get ekki setið hjá og horf upp á fjórðunginn sogast lengra og lengra aftur úr öðrum landshlutum. Það er bara of sorglegt. Mér líður í alvörunni eins og ég sé að horfa upp á náinn ættingja drekka sig í hel og sólunda bróðurparti launa sinna. Við þurfum að hjálpa honum að koma sér á lappir. Taka sig á. Og ekki segja mér enn eina ferðina að laxeldið muni bjarga þessu. Eða þörungarnir. Eða rækjuverksmiðjan. Ég er búinn að hlusta á sönginn um vestfirsku fortíðarþrána í fjörutíu ár. Stórfellda atvinnuuppbyggingu sem mun hefja Vestfirði aftur upp í fyrri hæðir. En svo auðugur er enginn maður að hann geti keypt sér aftur fortíð sína. Ef grunnreksturinn er ekki góður þá mun fjórðungurinn ekki ná vopnum sínum. Hvað sem öllu verksmiðjubrölti líður. Vestfirðingar þurfa að hafa kjark til að draga línu í sandinn, horfa fram á við og sameina krafta sína. Átta sig á því hvað það er raunverulega sem sameinar þá. Það þarf að gerast núna. Ekki seinna. Höfundur er Vestfirðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Gunnarsson Byggðamál Sveitarstjórnarmál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun