Fiskiskip vélarvana eftir að eldur kviknaði Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. október 2020 14:24 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en síðar snúið við. Vísir/vilhelm
Eldur kom upp í fiskiskipi úti fyrir Norðurlandi á öðrum tímanum í dag. Fjögurra manna áhöfn er um borð í skipinu en henni tókst fljótt að ráða niðurlögum eldsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Skipið er vélarvana og verður dregið til hafnar í dag. Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að stjórnstöð hafi borist neyðarkall frá skipinu á öðrum tímanum vegna elds um borð. Sjóbjörgunarsveitir á vegum Landsbjargar á Norðurlandi voru einnig kallaðar út en þær munu flytja slökkviliðsmenn að fiskiskipinu. Bátar í grennd við skipið voru einnig beðnir um að halda á staðinn. Tveir fiskibátar eru þegar komnir að skipinu og yfirvofandi hætta liðin hjá, enda tókst áhöfninni að slökkva eldinn, líkt og áður segir. Slökkvikerfi skipsins var virkjað og lokað niður í vélarrúm. Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað til aðstoðar klukkan 13:40 en var afturkölluð. Gert er ráð fyrir að fiskiskipið Björg, sem statt var á siglingu skammt frá, muni draga vélarvana skipið til hafnar.
Landhelgisgæslan Slökkvilið Sjávarútvegur Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Hætta leitinni í Meradölum Innlent Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Sjá meira