Manchester United átti ekki í neinum vandræðum með Brighton & Hove Albion í kvöld. Liðið vann 3-0 sigur á útivelli og er komið í 8-liða úrslit enska deildarbikarsins.
Eftir mjög undarlegan leik liðanna í deildinni um liðna helgi - þar sem Man United vann 3-2 sigur með marki úr vítaspyrnu þegar leiktíminn var liðinn og Brighton áttu fimm skot í marksúlurnar - þá var ekki vitað við hverju átti að búast í kvöld.
Leikurinn var heldur rólegri en sá um helgina og stefndi í markalausan fyrri hálfleik. Gestirnir frá Manchester fengu þá aukaspyrnu sem Juan Mata tók. Hann sendi boltann inn á teig og Scott McTominay stangaði knöttinn í netið. Gestirnir því 1-0 yfir í hálfleik.
Þannig var staðan allt fram á 73. mínútu þegar Mata tvöfaldaði forystu Man Utd en hann fékk skemmtilega hælsendingu frá Donny van de Beek og kláraði færið afbragðsvel. Hans 50. mark í öllum keppnum fyrir félagið.
50 - Juan Mata has now scored 50 goals in all competitions for Manchester United, with five of those coming in the League Cup. Contribution. pic.twitter.com/Sd26VwLmVH
— OptaJoe (@OptaJoe) September 30, 2020
Skömmu áður hafði Dean Henderson varið vel í marki Manchester United. Henderson hefur leikið báða leiki liðsins í deildarbikarnum og haldið hreinu í þeim báðum.
Það var svo varamaðurinn Paul Pogba sem tryggði sigurinn þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Hann átti þá skot úr aukaspyrnu sem hafði viðkomu í varnarmanni og flaug í netið.
1 - Paul Pogba has scored his 33rd goal in all competitions for Manchester United, but tonight is his first from a direct free-kick. Laser. pic.twitter.com/jyoOr2GDNo
— OptaJoe (@OptaJoe) September 30, 2020
Staðan orðin 3-0 og reyndust það lokatölur leiksins. Man United því komið áfram líkt og Newcastle United, Manchester City, Everton og Tottenham Hotspur.