Enski boltinn

Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool

Sindri Sverrisson skrifar
Mohamed Salah gæti enn bætt við leikjalista sinn hjá Liverpool.
Mohamed Salah gæti enn bætt við leikjalista sinn hjá Liverpool. Getty/Robbie Jay Barratt

Mohamed Salah hefur ekki spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool því hann fékk góðar fréttir úr læknisskoðun eftir að hafa meiðst gegn Crystal Palace á laugardaginn.

Liverpool greinir frá þessu á heimasíðu sinni og segir að reikna megi með því að Salah verði til taks aftur áður en að leiktíðinni ljúki.

Komið hafi í ljós að meiðslin sem leiddu til þess að Salah var skipt af velli í seinni hálfleik gegn Palace hafi verið minni háttar vöðvameiðsli.

Salah mun kveðja Liverpool í sumar en áður en að því kemur á liðið eftir að spila fjóra leiki í ensku úrvalsdeildinni. Næsti leikur er stórleikur við Manchester United á sunnudaginn, þar sem sigur kæmi Liverpool upp fyrir United í 3. sæti. Liverpool á svo einnig eftir leiki við Chelsea, Aston Villa og loks Brentford 24. maí.

Liverpool er sem stendur átta stigum fyrir ofan Brighton sem er í 6. sæti en ljóst er að hið minnsta fimm efstu lið deildarinnar komast í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×