Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Sindri Sverrisson skrifar 28. apríl 2026 23:16 Álagið er mikið á Erling Haaland og félögum í Manchester City í maí enda á liðið möguleika á að vinna ensku þrennuna. Getty/Jose Breton Manchester City-menn eru sagðir argir yfir því hvernig leikjadagskrá þeim er boðið upp á nú í lok tímabilsins, þegar þeir freista þess að vinna þrennuna á Englandi.
City er þegar búið að landa deildabikarmeistaratitlinum og mætir Chelsea í úrslitaleik bikarkeppninnar á Wembley laugardaginn 16. maí. Liðið á svo fimm leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni í hnífjafnri baráttu við Arsenal sem er þremur stigum ofar, með einu marki betri markatölu, en á bara fjóra leiki eftir. Leikir Man. City: 4. maí: Everton (ú) 9. maí: Brentford (h) 13. maí: Crystal Palace (h) 16. maí: Chelsea (FA-bikarinn á Wembley) 19. maí: Bournemouth (ú) 24. maí: Aston Villa (h) Álagið er ekkert minna á Arsenal sem þarf að spila tvo leiki við Atlético Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu, og spilar því þrjá leiki á næstu sjö dögum. Gremja City-manna, samkvæmt BBC, er hins vegar vegna þess að félagið telur að bregðast hefði átt strax við þegar City vann Newcastle 4. febrúar og komst í úrslitaleik deildabikarsins, og finna nýja dagsetningu fyrir leik liðsins við Crystal Palace. Það sé ótækt að það hafi tekið þrjá mánuði að ákveða dag fyrir þann leik. Samkvæmt upplýsingum BBC var beðið með þessa ákvörðun þar til eftir undanúrslitin í enska bikarnum til að hægt yrði að miðla upplýsingum til stuðningsmanna með meiri vissu. City stakk upp á að leikurinn við Palace yrði í vikunni frá 20.-27. apríl, eða 4. maí, en leikur liðsins við Burnley var settur á 22. apríl og Palace er auk þess upptekið í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Þá vill UEFA ekki að spilað sé 20. maí, vegna úrslitaleiks Evrópudeildarinnar, svo leikur City við Bournemouth fer fram degi fyrr. City stakk upp á að liðið mætti Bournemouth 12. maí og hefði þá aukadag fyrir bikarúrslitaleikinn, en myndi svo mæta Palace í vikunni eftir hann og ljúka þannig tímabilinu á tveimur heimaleikjum. Palace verður hins vegar að spila við Brentford 17. maí og ekki hægt að neyða liðið til að mæta City tveimur sólarhringum eftir það. Allt þetta þýðir að City mætir Palace, Chelsea og Bournemouth á aðeins einni viku, áður en liðið spilar svo við Villa í lokaumferð úrvalsdeildarinnar 24. maí.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira