Fyrr í mánuðinum kynntu tíu sprotafyrirtæki hugmyndir sínar á fjárfestadegi Startup SuperNova. Fjárfestadagurinn var í beinni útsendingu á netinu en þetta er einn vinsælasti viðburður ársins í sprotaumhverfinu.
Um helgina hefur Vísir birt myndbönd af kynningum sprotafyrirtækjanna sem tóku þátt í fjárfestadegi Startup SuperNova 2020. Hér má sjá kynningar sprota með miðasölu fyrir íþróttafélög, sölusíðu fyrir veiðileyfi og íslenska myndgreiningartækni.
Af þeim tíu fyrirtækjum sem tóku þátt í fjárfestadeginum 2020 var eitt fyrirtæki ekki með hefðbundna kynningu á sviði heldur er áhugasömum fjárfestum boðið til sérstakrar kynningar hjá þeim. Þetta er fyrirtækið SaniVisionAI sem vinnur að því að fækka spítalasýkingum.
Stubbur
Vettvangur fyrir íþróttafélög til að selja miða, hámarka sölu á meðan viðburðum stendur ásamt betri tengingu við stuðningsmenn.
Veiðiland
Veiðiland er sölusíða fyrir veiðileyfi og veiðiferðir í ám, vötnum og bátum út um allan heim. Síðan mun innihalda sölu á leyfum, búnaði, teningar við bílaleigur, tengingar við hótel og annað efni tengt veiði og veiðiferðum.
Vidcove
Vidcove nýtir íslenska myndgreiningartækni til að gera öll myndræn gögn fyrirtækja og stofnana leitanleg.
SaniVisionAI
Með nýjum aðferðum og nálgunum er markmiðið að fækka spítalasýkingum með því að færa tæknina inní fjórðu iðnbyltinguna.
SaniVision AI var ekki með hefðbundna kynningu á fjárfestadeginum en bjóða þess í stað upp á sérkynningar fyrir áhugasama fjárfesta.
Þau tíu fyrirtæki sem kynntu hugmyndir sínar á fjárfestadeginum voru valin úr hópi 120 umsókna. Við val þeirra var sérstaklega horft til viðskiptahugmynda sem ætlaðar eru á alþjóðamarkað.
Sprotafyrirtækin hlutu eina milljón króna í fjárstyrk auk þess að fá aðgengi að vinnuaðstöðu í Grósku í Vísindagörðum, fræðslu, þjálfun og ráðgjöf frá frumkvöðlum, fjárfestum og öðrum sérfræðingum.