Athugasemdin sem Svavar Halldórsson eyddi Páll Steingrímsson skrifar 25. ágúst 2020 08:00 Svavar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður, vill ekki sjá umræðu um vinnubrögð fréttamanna Ríkisútvarpsins og eyddi athugasemd sem ég skrifaði við pistil sem hann birti á Facebook um þáttagerð Samherja. Ég birti því athugasemdina lítillega breytta á þessum vettvangi enda tel ég að spyrna verði fótum við ritskoðun af þessu tagi. Pistill Svavars, sem er maður Þóru Arnórsdóttur ritstjóra Kveiks og fyrrverandi ritstjóra Kastljóss, var fullur af fúkyrðum og þar var því fundið flest til foráttu að Samherji hafi ráðist í framleiðslu sjónvarpsþátta. Fyrsti þáttur Samherja fór í loftið 11. ágúst síðastliðinn en þar var fjallað um vinnubrögð fréttamanna Ríkisútvarpsins við gerð Kastljóssþáttar um Samherja hinn 27. mars 2012 þar sem sagt var frá meintri sölu Samherja á karfa á undirverði til erlendra dótturfélaga. Í Kastljósi var umfjöllunin sögð byggja á „skýrslu Verðlagsstofu skiptaverðs“ og var ítrekað vísað til þessarar skýrslu. Þannig var áhorfendum talin trú um að umfjöllunin byggði á skýrslu ríkisstofnunar sem hafði að geyma efnislega niðurstöðu. Í heimildarþætti Samherja kom fram að Verðlagsstofa skiptaverðs hefði aldrei samið skýrslu vegna málsins og vitnað var í ný og áður óbirt gögn frá stofnuninni því til staðfestingar. Eftir að þáttur Samherja var sýndur staðfesti Verðlagsstofa þetta með yfirlýsingu sem birtist á heimasíðu stofnunarinnar. Þar segir að um hafi verið að ræða Excel-skjal án niðurstöðu. „Ekki var skrifuð sérstök skýrsla af hálfu Verðlagsstofu af þessu tilefni og ekki lagt efnislegt mat á þær upplýsingar sem þarna voru dregnar saman,“ segir í yfirlýsingunni. Allar fullyrðingar úr Kastljósþættinum voru rangar Í pistli sínum um þáttagerð Samherja fjallaði Svavar Halldórsson ekkert um vinnubrögð Ríkisútvarpsins. Þá blandaði hann saman Seðlabankamálinu og ásökunum á hendur Samherja vegna starfseminnar í Namibíu. Samherji hefur gefið það út að fyrirtækið muni fjalla um þær ásakanir og bíð ég spenntur eftir því. En við skulum halda okkur við það sem Samherji hefur fjallað um á þessum tímapunkti. Svavar segir í pistli sínum að innihald „skýrslunnar“ frá Verðlagsstofu skipti höfuðmáli. Þá er mikilvægt að halda til haga að hvorki Samherji né nokkur nokkur starfsmaður félagsins hefur verið sakfelldur fyrir gjaldeyrisbrot. Samherji og starfsmenn fyrirtækisins sluppu því ekki á tæknilegum atriðum. Í því sambandi ber að halda nokkrum staðreyndum til haga: a) Sérstakur saksóknari skoðaði fiskverðið hjá Samherja í tvö ár og felldi málið niður. Það fól auðvitað í sér efnislega athugun. b) Skattrannsóknarstjóri skoðaði fiskverðið líka og lokaði málinu. Það fól í sér efnislega athugun af hálfu embættisins. c) Seðlabankinn tók fiskverðið hjá Samherja aftur til skoðunar og lokaði málinu. Það var í annað sinn sem Seðlabankinn tók þennan þátt málsins til efnislegrar athugunar. Þetta þýðir að allar fullyrðingar úr Kastljósþættinum reyndust rangar. Þá er mikilvægt að undirstrika að Samherji vann fullnaðarsigur í Seðlabankamálinu með dómi Hæstaréttar hinn 8. nóvember 2018. Gífuryrði Svavars Halldórssonar virðast fyrst og fremst beinast að því að Samherji kaus að koma sjónarmiðum sínum beint og milliliðalaust á framfæri með þáttagerð á YouTube í stað þess að láta RÚV matreiða málið ofan í þjóðina. Samherji hefur aldrei sagst vera fjölmiðill og er ekki að miðla hefðbundnum fréttum heldur upplýsingum um eigin málefni. Það er nokkuð athyglisvert að RÚV geri athugasemdir við það en ekki þegar kaupsýslumaðurinn Bill Browder mætti í Kastljósviðtal árið 2015. Fyrirtæki hans, Hermitage Capital, hefur búið til sambærileg myndbönd á YouTube án þess að birta upplýsingar um framleiðsluna og hverjir standa að henni. Mig rekur ekki minni til þess að Kastljós hafi gert athugasemdir við það. Velta má fyrir sér hver sé munurinn á þáttagerð Samherja og Hermitage Capital. Mega erlend fyrirtæki miðla upplýsingum til almennings á YouTube en ekki Samherji? Þá er mikilvægt að fram komi að fjöldi íslenskra stofnana og fyrirtækja framleiðir myndbönd og annað efni til að miðla upplýsingum til almennings. Í því sambandi er nærtækt að nefna Landspítalann sem er stórtækur í sjónvarpsþáttagerð og er með sitt eigið hlaðvarp. Má Landspítalinn gera sjónvarpsþætti en ekki Samherji? Gengið milli ríkisstofnana Í stað þess að fjalla um vinnubrögð Ríkisútvarpsins og þá staðreynd að starfsfólk RÚV getur ekki sannað fullyrðingar sínar úr Kastljósi er farið fram á ritvöllinn með fúkyrðum. Það gera þeir sem hafa vondan málstað að verja. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn Ríkisútvarpsins hafa þyrlað upp ryki í stað þess að fjalla efnislega um þær upplýsingar sem komu fram í þáttum Samherja. Í fyrsta þætti Samherja kom fram að starfsmaður RÚV hafði gengið á milli ríkisstofnana og kom því til leiðar að ríkisstofnun fór í húsleit og kærði menn og fyrirtæki til lögreglu. Í hvaða öðru vestrænu ríki þekkist það að fréttamenn gangi á milli ríkisstofnana til að hvetja þær til að hefja rannsóknir á fyrirtækjum úti í bæ? Hvers vegna vísaði sami fréttamaður ítrekað til „skýrslu Verðlagsstofu skiptaverðs“ í áðurnefndum Kastljósþætti um Samherja þegar um var að ræða brotakennd gögn, Excel-skjal, án efnislegrar niðurstöðu? Hvers vegna bar sami fréttamaður ekki efni fréttarinnar undir Samherja áður en hann flutti alvarlegar ásakanir um lögbrot í sjónvarpinu? Myndu einhverjir heiðarlegir blaðamenn verja slík vinnubrögð og telja þau forsvaranleg? Hvers vegna sýna menn ekki snefil af auðmýkt, svona einu sinni, og viðurkenna að Ríkisútvarpið gekk of langt með umfjöllun sinni um Samherja? Það er býsna áhugavert að Svavar Halldórsson hafi stungið niður penna til að verja kollega sína á Ríkisútvarpinu og forðist efnislega umræðu um vinnubrögð þeirra eins og heitan eldinn. Því Svavar var sjálfur dæmdur fyrir meiðyrði vegna fréttar sem hann gerði um Jón Ásgeir Jóhannesson í kvöldfréttum RÚV. Það er ástæða til að rifja upp niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli nr. 69/2012. Þar segir: „Hefur stefndi engin gögn lagt fram um að tilgreind ummæli um áfrýjanda eigi við rök að styðjast og verður hann að bera hallann af því, en það stóð honum nær en áfrýjanda að tryggja sér slíka sönnun. Þá hefur stefndi ekki sýnt fram á að hann hafi við vinnslu fréttarinnar leitað eftir upplýsingum frá áfrýjanda um efni hennar. Gætti hann því ekki þeirrar skyldu sem fram kemur í 2. gr. reglna um fréttir og dagskrárefni tengt þeim í Ríkisútvarpinu frá 1. maí 2008 að leita „ ... upplýsinga frá báðum eða öllum aðilum og leitast við að kynna sjónarmið þeirra sem jafnast.“ Getur stefndi því ekki talist hafa verið í góðri trú um sannleiksgildi þeirra ummæla um áfrýjanda sem í fréttinni fólust. Að þessu virtu verður fallist á kröfu áfrýjanda um ómerkingu tilvitnaðra ummæla með vísan til 241. gr., sbr. 235. gr. almennra hegningarlaga.“ Svavar Halldórsson var í vondri trú þegar hann gerði frétt sína um Jón Ásgeir, eins og kemur fram í dómi Hæstaréttar. Rétt eins og fréttamenn Kastljóss voru í vondri trú þegar þeir gerðu þáttinn um Samherja. Það kemur kannski ekki á óvart að fréttamaður sem var dæmdur fyrir meiðyrði skuli koma kollegum sínum, sem gerast sekir um jafn óvönduð vinnubrögð, til varnar. Höfundur er skipstjóri hjá Samherja hf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Samherjaskjölin Páll Steingrímsson Mest lesið Smábátar eru framtíðin, segir David Attenborough Kjartan Sveinsson Skoðun Orðskrípið sem bjarga á veiðigjaldinu Ólafur Adolfsson Skoðun Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig! Magnús Guðmundsson Skoðun Yfirgnæfandi meirihluti vill þjóðaratkvæði Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir Skoðun Hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson Skoðun Hvers konar Evrópuríki viljum við vera? Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið Arnar Þór Jónsson Skoðun Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur Davíð Routley Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Ægir Örn Arnarson skrifar Skoðun Loftslagsaðgerðir eru forsenda velsældar til framtíðar – ekki valkostur: Svargrein við niðurstöðum rannsóknar sem kynnt var á Velsældarþingi í gær Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun 75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig! Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Vetrarvirkjanir Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Yfirgnæfandi meirihluti vill þjóðaratkvæði Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Smábátar eru framtíðin, segir David Attenborough Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Leiðrétting veiðigjalda mun skila sér í bættum innviðum Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur Davíð Routley skrifar Skoðun Börn innan seilingar Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Hvers konar Evrópuríki viljum við vera? Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Orðskrípið sem bjarga á veiðigjaldinu Ólafur Adolfsson skrifar Skoðun Túlkun er ekkert að fara – en hvað ætlum við að gera með hana? Birna Ragnheiðardóttir Imsland skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Kafli tvö: Eiskrandi kröfur Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Palestína er að verja sig, ekki öfugt Stefán Guðbrandsson skrifar Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson skrifar Skoðun Lýðræði á ystu nöf: Hver er afstaða unga fólksins? Jonas Hammer skrifar Skoðun Hvað ef ég hjóla bara í vinnuna? Eiríkur Búi Halldórsson skrifar Skoðun Litlu ljósin á Gaza Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Ekki leiðrétting heldur skattahækkun: Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Staðreyndir eða „mér finnst“ Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Fjármagna áfram hernað Rússlands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Frídagar í klemmu Jón Júlíus Karlsson skrifar Skoðun Fasteignaviðskipti – tímabært að endurskoða leikreglurnar? Hlynur Júlísson skrifar Skoðun Í skugga kerfis sem brást! Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Jöfn vernd fyrir öll börn í veröldinni Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Helför Palestínumanna í beinni útsendingu – viljum við vera samsek? Ólafur Ingólfsson skrifar Sjá meira
Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Loftslagsaðgerðir eru forsenda velsældar til framtíðar – ekki valkostur: Svargrein við niðurstöðum rannsóknar sem kynnt var á Velsældarþingi í gær Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið Arnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur Davíð Routley skrifar
Skoðun Túlkun er ekkert að fara – en hvað ætlum við að gera með hana? Birna Ragnheiðardóttir Imsland skrifar
Skoðun Ekki leiðrétting heldur skattahækkun: Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar
Skoðun Helför Palestínumanna í beinni útsendingu – viljum við vera samsek? Ólafur Ingólfsson skrifar
Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir Skoðun