Fólk var í miklu áfalli út um allan heim þegar fréttist af því að Kobe Bryant hafi farist í þyrluslysi ásamt þrettán ára dóttur sinni og sjö öðrum.
Kobe Bryant átti magnaðan feril í NBA-deildinni í körfubolta og var mjög sterk fyrirmynd fyrir fólk út allan heim. Kobe hafði líka blómstrað eftir að skórnir fóru upp á hillu, sem viðskiptamaður, sem körfuboltaspekúlant og síðast en ekki síst sem faðir.
Það var ekki að missa Kobe Bryant heldur einnig að missa þrettán ára dóttur hans sem allir vissu að var að fara gera flotta hluti inn á körfuboltavellinum enda nánast bein framlenging af föður sínum.
Rest in peace, Kobe and Gigi. Here are some murals that pay tribute to both the NBA legend and his daughter. https://t.co/fdUrc192St
— Los Angeles Magazine (@LAmag) February 11, 2020
Kobe Bryant og Gianna dóttir hans voru jörðuð á föstudaginn en þau voru jörðuð nálægt heimili Bryant-fjölskyldunnar í Orange County. Aðeins nánasta fjölskylda var viðstödd. Minningarathöfn um feðginin fer fram í Staples Center, heimavelli Los Angeles Lakers, þann 24. febrúar næstkomandi.
Fólk þarf að finna leið til að vinna úr þessum miklu sorgarfréttum. Fólk safnaðist saman við Staples Center og sagði sögur af hinum einstaka keppnismanni og mannvini Kobe Bryant.
Margir listamenn þurftu líka sína útrás og glæsilegir minningarveggir til heiðurs Kobe og Gigi spretta fram út um allt, bæði í Bandaríkjunum sem og annars staðar. Flestir þeirra eru þó á Los Angeles svæðinu þar sem Kobe var nánast í guðatölu. Hér fyrir neðan eru dæmi um nokkra.
More and more Kobe Bryant murals are popping up across the country and they're unbelievable
— ESPN (@espn) February 11, 2020
(via mikecomp, banditgraffiti, hijackart, velaart/Instagram) pic.twitter.com/uq0p9gP1Zg
Here are some of the most heartbreaking and beautiful murals of Kobe and Gigi, from LA to the Philippines? pic.twitter.com/69rDAs9XKa
— SLAM (@SLAMonline) February 1, 2020
These Kobe & Gianna murals are beautiful. Wow. pic.twitter.com/Bt8joYgebZ
— Legion Hoops (@LegionHoops) February 9, 2020
My favorite murals of Kobe & Gigi Bryant. pic.twitter.com/vQbOhs9nul
— Lake Show (@LakeShowFamily) February 10, 2020
View this post on InstagramMamba Forever. credit: @sloe_motions #twentyfourever #BlackMamba #Mambacita #Lakers #RIPKobe