Innlent

Einn af hverjum tuttugu hin­segin nem­endum orðið fyrir líkams­á­rás í skóla

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa
28 prósent hinsegin nemenda hafa orðið varir við fordómafulla orðanotkun starfsmanna skóla.
28 prósent hinsegin nemenda hafa orðið varir við fordómafulla orðanotkun starfsmanna skóla. Vísir/Jóhann

Einn af hverjum tuttugu hinsegin nemendum hefur orðið fyrir líkamsárás í skólum vegna persónueinkenna. Þetta kemur fram í könnun sem Samtökin 78 framkvæmdu á líðan hinsegin ungmenna í skólum. 

Samtökin 78 framkvæmdu könnun á líðan hinsegin ungmenna í skólaumhverfinu. Niðurstöðurnar eru nokkuð sláandi en Tótla I. Sæmundsdóttir segir þær ekki koma á óvart.

Yfirlit yfir hvers vegna hinsegin nemendur eru óöryggir í skólum.Samtökin´78

„Við þurfum að bæta margt þegar kemur að hinsegin ungmennum. Þau lenda í líkamlegu áreiti, munnlegu áreiti og líkamsárásum í skólanum,“ sagði Tótla.

Einn af hverjum tuttugu hinsegin nemendum hefur orðið fyrir líkamsárás vegna persónueinkenna og þriðjungur nemenda greindi frá því að finna fyrir óöryggi í skólanum vegna kynhneigðar sinnar.

Staðir sem hinsegin nemendur forðast í skólum.Samtökin´78

Þegar þau voru spurð út í fjarvistir sagðist fjórðungur hinsegin nemenda hafa skrópað í skólanum í það minnsta einn dag síðasta mánuðinn vegna óþæginda eða óöryggis.

Oftar samnemendur sem grípa inn í en kennarar

Algengt er að hinsegin ungmenni forðist búningsklefa eða leikfimitíma þar sem þriðjungur þeirra forðast þessar aðstæður vegna óöryggis eða óþæginda.

Samtökin´78

Fram kemur í könnuninni tæp 46 prósent finna aldrei fyrir afskiptum starfsfólks þegar niðrandi orðfærni sem beinist að hinsegin fólki er notað í þeirra viðurvist. Aðgerðarleysi starfsfólks sendi þau skilaboð að niðrandi ummæli gagnvart hinsegin fólki séu umborin í skólanum.

„Það eru oftar samnemendur þeirra sem grípa inn í heldur en kennarar,“ sagði Tótla.

28% nemenda segjast hafa heyrt fordómafull ummæli frá starfsfólki skólanna.Samtökin´78

Efla þurfi fræðslu fyrir nemendur og kennara.

„Þetta byrjar á fræðslu. Við viljum fræðslu fyrir nemendur og fræðslu fyrir kennara. Við viljum að betur sé haldið utan um hinsegin ungmenni í skólanum. Einnig viljum við sjá námsefni sem endurspeglar þeirra veruleika og samfélag. Þau tilkynna í könnuninni að það sé lítið sem ekkert námsefni sem endurspegli hinsegin fólk í jákvæðu ljósi,“ sagði Tótla.


Tengdar fréttir

Afsökunarbeiðni Þjóðkirkjunnar hefur mikla þýðingu

Biskup Íslands hefur beðið hinsegin samfélagið afsökunar á misrétti og útskúfun af hálfu kirkjunnar. Formaður Samtakanna 78 segir þetta hafa mikla þýðingu þó ekki séu enn öll sár gróin.

Ég elska að vera hommi

Ég elska að vera hommi. Ég er mjög sáttur í eigin skinni og ég elska hvern dag sem ég lifi. Þess óska ég fyrir alla, sama hver kynhneigðin er. Punktur.

Hönnuðu vagn tileinkaðan trans fólki

Strætó hefur látið hanna strætisvagn tileinkaðan trans fólki á Íslandi og réttindabaráttu þeirra í tilefni Hinsegin daga 2020.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×