Chris Paul, leikstjórnandi Oklahoma City Thunder, var svo niðurbrotinn eftir fráfall Kobe Bryant að hann treysti sér ekki til að spila með liðinu í nótt.
Oklahoma City Thunder tapaði þá með tíu stigum á móti Dallas Mavericks 107-97. Auk fjarveru Chris Paul þá var Kobe minnst á marga vegu þetta kvöld. Luka Doncic var atkvæðamestur hjá Dallas með 29 stig og 11 fráköst. Dennis Schroder skoraði 21 stig fyrir OKC.
Luka pays tribute to all the victims of yesterday's tragedy on his kicks tonight.
— Yahoo Sports (@YahooSports) January 28, 2020
(via @dallasmavs) pic.twitter.com/2AXOi8znw1
Eftir síðasta leik Oklahoma City Thunder þá fór Chris Paul heim til Los Angeles til að fylgjast með danssýningu dóttur sinnar og hann var þar þegar fréttist af þyrluslysi Kobe Bryant.
„Ég hef talað við hann en það verða áfram einkasamtöl og ég ætla ekki að segja frá þeim. Það sem við ræddum var á milli mín og Chris en það er í lagi með hann. Hann tók sér einn persónulegan dag,“ sagði Billy Donovan, þjálfari Oklahoma City Thunder.
Þetta er í fyrsta sinn í vetur þar sem Chris Paul er ekki í búningi en hann hefur gert mjög góða hluti með Oklahoma City liðinu.
Chris Paul will miss his first game of the season as he mourns the loss of friend Kobe Bryant. #NBAhttps://t.co/EeJjoKYu2k
— ESPN5 (@Sports5PH) January 28, 2020
Chris Paul og Kobe Bryant urðu mjög nánir þegar þeir léku saman með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikunum og Paul ásamt þeim Carmelo Anthony og Dwyane Wade buðu Kobe Bryant í sérstakan veislukvöldverð á síðastu Stjörnuhelginni hans árið 2016.
Chris Paul hefur átti mjög flott tímabil með Oklahoma City Thunder og er maðurinn sem tekur yfir hjá liðinu í look leikja. Hann er með 17,2 stig, 5,0 fráköst og 6,4 stoðsendingar að meðaltali og enginn skorar meira í deildinni en þegar úrslit leikjanna eru að ráðast svokölluð „clutch-time“ stig.
Buddy Hield goes for a career-high 42 PTS, 9 3PM, and the @SacramentoKings come back from 27 down to win in OT.
— NBA (@NBA) January 28, 2020
De'Aaron Fox: 22 PTS, 7 REB, 8 AST
Nemanja Bjelica: 20 PTS, 9 REB, 8 AST pic.twitter.com/qZmuW5rcLT
Eric Gordon skoraði 50 stig og sá til þess að vængbrotið lið Houston Rockets vann 126-117 útisigur á Utah Jazz án þeirra James Harden og Russell Westbrook. Danuel House Jr. og Austin Rivers voru báðir með 21 stig en þetta var fyrsta tap Utah á heimavelli síðan 9. desember.
Eric Gordon varð fyrsti leikmaður Houston Rockets, sem ekki heitir James Harden, til að skora 50 stig í leik síðan að Hakeem Olajuwon gerði það í janúar 1996.
The @DetroitPistons pay tribute to Kobe Bryant by wearing No. 24 and No. 8 jerseys during pregame introductions. pic.twitter.com/dOuXgsiAlF
— NBA (@NBA) January 28, 2020
Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:
Utah Jazz - Houston Rockets 117-126
Chicago Bulls - San Antonio Spurs 110-109
Minnesota Timberwolves - Sacramento Kings 129-133
Oklahoma City Thunder - Dallas Mavericks 97-107
Miami Heat - Orlando Magic 113-92
Detroit Pistons - Cleveland Cavaliers 100-115
De'Aaron Fox intentionally misses the free-throw, gets the rebound and lays it in to force OT. pic.twitter.com/FY2nrEpAQk
— NBA (@NBA) January 28, 2020