Manchester United er komið áfram í 4. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 1-0 sigur á Wolves í endurteknum leik í kvöld. Fyrr í mánuðinum gerðu liðin markalaust jafntefli á Molineux.
Juan Mata skoraði eina mark leiksins í kvöld. Hann slapp þá inn fyrir vörn Úlfanna eftir sendingu Anthonys Martial og vippaði skemmtilega yfir John Ruddy.
United slapp með skrekkinn í fyrri hálfleik þegar mark var dæmt af Úlfunum eftir að Raúl Jiménez handlék boltann.
Wolves sló United út úr bikarkeppninni á síðasta tímabili en nú snerist dæmið við.
Í 4. umferðinni mætir United annað hvort Watford eða Tranmere Rovers.

