Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2026 19:30 Bruno Guimaraes er aðalskotmark Arsenal. getty/Rob Newell Englandsmeistarar Arsenal ætla að gera Newcastle United sjötíu milljóna punda tilboð í Bruno Guimaraes, fyrirliða liðsins.
BBC greinir frá því að viðræður standi yfir milli Arsenal og Newcastle. Skytturnar vilja ólmar klófesta Guimaraes og hann hefur áhuga á að ganga í raðir Englandsmeistaranna. Enn á þó eftir að koma í ljós hvort Newcastle samþykki tilboð Arsenal. Arsenal gekk í dag frá kaupunum á gríska kantmanninum Christos Tzolis frá Club Brugge og hefur hug á að styrkja sig frekar fyrir titilvörnina. Guimaraes, sem er 28 ára, lék með brasilíska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Norður-Ameríku sem lauk um helgina. Brasilía tapaði fyrir Noregi í sextán liða úrslitum, 2-1, en Guimaraes klúðraði vítaspyrnu í leiknum. Newcastle keypti Guimaraes frá Lyon í byrjun árs 2022. Hann hefur spilað 195 leiki fyrir Newcastle og skorað 31 mark. Guimaraes var gerður að fyrirliða Newcastle fyrir tveimur árum. Arsenal varð Englandsmeistari á síðasta tímabili, í fyrsta sinn í 22 ár, auk þess sem liðið komst í úrslit Meistaradeildar Evrópu og enska deildabikarsins.
Enski boltinn Arsenal FC Newcastle United Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sport Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti Fleiri fréttir Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Sjá meira