Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Valur Páll Eiríksson skrifar 27. júlí 2026 18:01 Danny Welbeck hefur heillað á fertugsaldri í ensku úrvalsdeildinni. Getty/Robbie Jay Barratt Xabi Alonso, þjálfari Chelsea, vill fá Danny Welbeck, framherja Brighton, til liðs við Lundúnaliðið. Einnig er Chelsea sagt leiða kapphlaup um krafta Jordan Henderson.
Welbeck á tólf mánuði eftir af samningi sínum við Brighton og samkvæmt fregnum frá Bretlandi er bjartsýni á alla kanta að hægt sé að ganga frá kaupunum. Leikstíll hins 35 ára gamla Welbeck sem og leiðtogahæfileikar eru sagðir heilla Alonso en möguleg skipti eru þó á frumstigi. Welbeck spilaði 37 af 38 leikjum Brighton á síðustu leiktíð og skoraði 13 mörk, sem er það mesta sem hann hefur skorað á einni leiktíð í ensku úrvalsdeildinni á ferlinum. Welbeck hefur skorað 51 mark í 201 leik fyrir Brighton eftir skipti hans frá Watford árið 2020. Eftir að hafa bætt við sig urmul ungra og efnilegra leikmanna undanfarin ár er Chelsea sagt leita manna með reynslu af ensku úrvalsdeildinni þetta sumarið. Félagið reyndi, án árangurs, að fá 34 ára gamlan Granit Xhaka, fyrirliða Sunderland, sem lék undir stjórn Alonso hjá Bayer Leverkusen. Þá er Chelsea einnig á höttunum eftir John Stones, 31 árs miðverði enska landsliðsins, sem yfirgaf Manchester City um síðustu mánaðarmót eftir að samningur hans rann út. Liðið berst við Everton, fyrrverandi félag Stones, auk Inter og Juventus á Ítalíu, um undirskrift miðvarðarins. Jordan Henderson fór með enska landsliðinu á HM í sumar. Marc Atkins/Getty Images Chelsea leiðir þá kapphlaupið um 36 ára gamlan Jordan Henderson. Hann er samningsbundinn Brentford, eftir að hafa skipt frá Ajax síðasta sumar, en getur yfirgefið félagið frítt. Fjöldi liða í ensku úrvalsdeildinni er á höttunum eftir Henderson en Chelsea sagður líklegasti áfangastaður miðjumannsins. Hvað framherjastöðu Chelsea varðar eru spurningamerki um framtíð Liam Delap og Nicolas Jackson, sem var á láni hjá Bayern Munchen síðasta vetur. Þá er Emmanuel Emegha genginn í raðir félagsins frá venslaliðinu Strasbourg en gengið var frá þeim kaupum síðasta sumar.
Enski boltinn Chelsea FC Brighton & Hove Albion Brentford FC Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Enski boltinn Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira