Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2026 17:15 James Trafford er uppalinn hjá Manchester City en lék ekki með aðalliðinu fyrr en hann var keyptur aftur í fyrra. Nú virðist hann vera á förum frá City. epa/NEIL HALL Svo virðist sem Leeds United ætli að borga metverð fyrir markvörðinn James Trafford sem leikur með Manchester City. Ef af kaupunum verður kemst hann í hóp með dýrustu markvörðum sögunnar.
The Athletic greinir frá yfirvofandi félagaskiptum Traffords frá City til Leeds. Samkvæmt heimildum The Athletic mun Leeds greiða City fjörutíu milljónir punda fyrir Trafford auk bónusa. Gangi allt eftir verður Trafford dýrasti enski markvörðurinn frá upphafi og einn dýrasti markvörður sögunnar. Aðeins Kepa Arrizabalaga, Alisson, Gianluigi Buffon og André Onana hafa verið keyptir fyrir meira en þær fjörutíu milljónir sem Leeds mun væntanlega greiða City fyrir Trafford. Eftir að hafa leikið vel með Burnley í B-deildinni tímabilið 2024-25 gekk Trafford í raðir City síðasta sumar. Hann bjóst við að verða aðalmarkvörður liðsins en það breyttist þegar Gianluigi Donnarumma var keyptur á lokadegi félagaskiptagluggans. Trafford spilaði sautján leiki í öllum keppnum á síðasta tímabili, meðal annars alla leikina í ensku bikarkeppninni og deildabikarnum. City vann báðar keppnirnar. Hinn 23 ára Trafford hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir England og var í enska hópnum á nýafstöðnu heimsmeistaramóti. Leeds, sem endaði í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, hefur þegar fengið Harry Wilson frá Fulham og Tarik Muharemovic frá Sassuolo fyrir átök næsta tímabils.
Enski boltinn Leeds United Manchester City Mest lesið Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin Enski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Sjokk fyrir Róbert: „Heyrist hátt brak og maður varð hræddur“ Fótbolti „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ Íslenski boltinn Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Hjörvar og Schmeichel spáðu í spilin fyrir grannaslaginn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Brighton valtaði yfir nýliðana Öll mörk gærdagsins: Dramatík, óvænt úrslit og mörk úr efstu hillu Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Arsenal sótti þrjú stig í hitaleik Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Boðið upp á þvílíka dramatík í enska boltanum Tottenham fékk sín fyrstu stig tímabilsins Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Hull enn taplaust í deildinni Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira