Alls fóru sex leikir fram í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Inter Milan gerði markalaust jafntefli við Fiorentina á heimavelli, Roma vann stórsigur á SPAL og þá töpuðu Birkir Bjarnason og félagar í Brescia 3-1 gegn Lecce og eru þar með fallnir.
Inter hefði með sigri komist aftur upp í annað sæti deildarinnar en jafntefli þýðir að liðið er stigi á eftir Atalanta þegar þrjár umferðir eru eftir. Roma vann 6-1 útisigur á SPAL en Rómverjar sitja samt sem fastast í 5. sæti deildarinnar.
Lecce og Brescia mættust í sannkölluðum botnslag. Bæði lið í fallsæti fyrir leik og þó svo að þau séu það enn eftir leiki kvöldsins er ljóst að Birkir Bjarnason og samherjar hans eru fallnir niðri í Serie B eftir 3-1 tap í kvöld.
Birkir spilaði síðustu þrjátíu mínútur leiksins.
Úrslit kvöldsins
Lecce 3-1 Brescia
Sampdoria 1-2 Genoa
Torino 1-1 Hellas Verona
SPAL 1-6 Roma
Inter Milan 0-0 Fiorentina