Viðskipti innlent

Brosmildir Kringlugestir tóku hundunum fagnandi

Sylvía Hall skrifar
Þessi hundur fékk að kíkja í Kringluferð í dag.
Þessi hundur fékk að kíkja í Kringluferð í dag. Vísir/Einar

Kringlan leyfði í fyrsta sinn hunda í verslunarmiðstöðinni í dag en framvegis verður heimilt að taka með sér smáhunda í verslunarmiðstöðina á sunnudögum. Stærri hundar eru ekki bannaðir, en þó eru viðskiptavinir beðnir vinsamlega um að virða þær reglur sem gilda um heimsóknir hundanna.

„Skilyrði eru að það sé hægt að halda á þeim í rúllustiga og/eða kippa þeim í fangið ef eitthvað kemur upp á. Skv reglugerðum eru hundar ekki leyfðir í matvöruverslanir, inn á snyrti - og læknastofur. Viðskiptavinir eru beðnir um að sýna þeim verslunum/ þjónustuaðilum skilning, sem ekki eru í stakk búin að leyfa hundaheimsóknir.“

Soffía Kristín Kwaszenko var á meðal þeirra hundaeigenda sem lagði leið sína í Kringluna í dag. Hún sagði nauðsynlegt að halda daginn hátíðlegan og var ánægð með breytingarnar.

Soffía segir mikið gleðiefni að öll fjölskyldan geti nú farið í Kringluna.Vísir/einar

„Þetta gekk alveg rosalega vel fyrir sig. Hundurinn þarf umhverfisþjálfun og hefur lítið verið í svona aðstæðum, en hann stóð sig með prýði. Fólk var rosalega brosmilt og glatt að sjá hann,“ sagði Soffía, en hún tók hundinn sinn Mangó með sér.

„Þetta er smá skref í rétta átt. Vonandi taka fleiri þetta upp og að þetta verði alla daga. Ég vona að aðrir hundaeigendur verði okkur til sóma.“

Hún segist hafa tekið eftir umræðu á samfélagsmiðlum um mögulegan sóðaskap vegna hundanna. Sjálf hefur hún litlar áhyggjur af því, enda sé það undir eigendum komið að þjálfa hundana og að þeir séu yfirleitt þrifalegri en mannfólkið.

„Ég held að hundarnir hafi vinninginn þar.“

Þetta verkefni Kringlunnar hefur fengið leyfi frá umhverfisráðuneytinu og heilbrigðiseftirliti borgarinnar. Það er þó í stöðugu endurmati og eru viðskiptavinir beðnir um að kynna sér þær reglur og skilmála sem Kringlan hefur sett fram.

Hér að neðan má sjá nokkra káta gesti Kringlunnar í dag, sem voru margir hverjir í loðnari kantinum.

Vísir/einar
vísir/Einar
vísir/einar
vísir/einar
vísir/Einar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×