Um 700 jarðskjálftar við Þorbjörn frá því í síðustu viku Kjartan Kjartansson skrifar 6. júní 2020 09:40 Grindavík með fjallið Þorbjörn í baksýn. Myndin var tekin í vetur þegar jarðhræringar hófust á svæðinu. Vísir/Vilhelm
Vísindaráð almannavarna ætla að funda til að meta stöðuna eftir að vísbendingar komu fram um að landris sé hafið á ný við fjallið Þorbjörn við Grindavík. Um 700 jarðskjálftar hafa í nágrenni bæjarins undanfarna viku, flestir þeirra smáskjálftar. Fylgst hefur verið grannt með svæðinu í kringum Þorbjörn eftir að landris mældist þar með tilheyrandi jarðskjálftum í upphafi árs. Jarðviknin var tengd við mögulegt kvikuinnskot á Reykjanesskaga. Óvissustig almannavarna vegna jarðhræringa er enn í gildi á Reykjanesskaga. Landrisið minnkaði í byrjun apríl og lauk hrinunni um miðjan þann mánuð, að því er segir í grein á vef Veðurstofu Íslands. Nýjustu gögn benda hins vegar til þess að landrisið sé hafið að nýju. Frá 30. maí þegar jarðskjálftavirkni jóst aftur hafa um 700 skjálftar mælst. Stærstu skjálftarnir voru 2,7 að stærð dagana 30. maí og 2. júní. Til stendur að leggja mat á stöðuna við Þorbjörn og fara yfir gögn sem vísindamenn Veðurstofunnar, Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og ÍSOR hafa safnað saman og unnið úr á fundi vísindaráðs almannavarna á miðvikudag.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Grindavík Tengdar fréttir Skjálfti 2,8 að stærð á Reykjanesi Skjálfti 2,8 að stærð varð um vestsuðvestur af Reykjanestá klukkan 2:03 í nótt. 2. júní 2020 07:19 Um 150 skjálftar hafa mælst á Reykjanesi síðasta sólarhringinn Frá því í gær hafa mælst um hundrað og fimmtíu jarðskjálftar á Reykjanesi og í heildina eru skjálftar nærri Þorbirni í Grindavík orðnir um þrjú hundruð og fimmtíu. 31. maí 2020 16:15 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira
Skjálfti 2,8 að stærð á Reykjanesi Skjálfti 2,8 að stærð varð um vestsuðvestur af Reykjanestá klukkan 2:03 í nótt. 2. júní 2020 07:19
Um 150 skjálftar hafa mælst á Reykjanesi síðasta sólarhringinn Frá því í gær hafa mælst um hundrað og fimmtíu jarðskjálftar á Reykjanesi og í heildina eru skjálftar nærri Þorbirni í Grindavík orðnir um þrjú hundruð og fimmtíu. 31. maí 2020 16:15