Viðskipti innlent

Segir Icelandair vel undir­búið miðað við önnur flug­fé­lög fyrir á­föll af þessum toga

Atli Ísleifsson skrifar
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, mætti í sett í aukafréttatíma Stöðvar 2 í hádeginu.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, mætti í sett í aukafréttatíma Stöðvar 2 í hádeginu.

Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, segir að ef marka megi fyrri og síðari tilkynningar frá Icelandair, þá sé félagið óvenju vel undirbúið miðað við flugfélög í Evrópu og kannski heimsvísu fyrir áföll af þeim toga sem glíma þarf við núna. „Það gefur manni þó ákveðna von.“

Jón Bjarki var gestur í setti í aukafréttatíma Stöðvar 2 í hádeginu vegna þeirra frétta að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi komið á ferðabanni á ferðum frá Evrópu til Bandaríkjanna. Hann segir ljóst að þessar breyttu aðstæður séu flugfélaginu talsvert þungar í skauti. Tengiflug farþega milli Evrópu og Norður-Ameríku hafi verið stór hluti af þeirra starfsemi.

Högg fyrir þjóðarbúið

Jón Bjarki segir að þetta komi til með að verða talsvert högg fyrir þjóðarbúið. „Þessar aðgerðir voru náttúrulega algerlega óvæntar. Við getum horft á það þannig að það hafi raungerst í einu vetfangi sú neikvæða óvissa sem var að byggjast upp síðustu daga um hvernig skammtímaáhrifin á ferðaþjónustu yrðu. Við verðum líka að hafa það í huga að það er þá að minnsta kosti að raungerast hluti af óvissunni og minni skammtímaóvissa fyrir hendi.“

Hann segir að bandarískir ferðamenn séu veigamiklir í ferðaþjónustunni hérlendis. „Þeir eru um þriðjungur af ferðamönnum og ferðaþjónustan náttúrulega nokkuð stór í íslensku hagkerfi. Tíu prósent af landsframleiðslunni tengist ferðaþjónustunni þannig að höggið, þegar þetta kemur svona fyrirvaralaust, og er svona algert eða umfangsmikið bann… Auðvitað er óvissa um nákvæmlega hvernig áhrifin verða en þau verða veruleg.“

Að neðan má sjá hádegisfréttatímann í heild sinni.

Einn skásti tíminn fyrir áföll sem þessi

Jón Bjarki segir ómögulegt að segja hvort að hjólin fari aftur að snúast um leið og ferðabanninu verður aflétt eða hvort að áhrifin verði meira langvarandi.

„Ferðaþjónustuaðilar hafa bent á að þegar verða svona tímabundnar truflanir þá hleðst hluti af eftirspurninni upp og fólk gerir þá sín plön með styttri fyrirvara. Af öllum tímum ársins þá er þessi tími einn sá skásti. Mars og fram í maí er tiltölulega rólegur tími í ferðaþjónustunni. Það er búið að draga úr norðurljósaferðum og slíku og háannatíminn ekki byrjaður.“

Ræður úrslitum hvort bókanir nái sér aftur á strik í vor

Jón Bjarki sagði ennfremur að það sem muni ráða úrslitum um hversu erfitt högg þetta yrði fyrir hagkerfið er hvort að bókanir nái sér á strik fyrir háannatímann.

„Venjulegur bókanatími fyrir sumarferðir vestrænna landa er einmitt mars, apríl og eitthvað fram í maí. Það má þó búast við að einhverjir bíði átekta og vilji halda því opnu að fara í sumarleyfisferðina sína um leið og fer að rofa til. Það skiptir sköpum – eins og við sjáum að minnsta kosti í Kína þar sem faraldurinn er í rénun – ef við sjáum meiri merki um það þá getur það fljótt létt brúnina á evrópskum, og jafnvel bandarískum ferðamönnum. En það má ekki mikið út af bregða. Ef þessi áhrif verða eitthvað vel fram yfir þetta þrjátíu daga bann, þá fer fljótt að syrta í álinn.“


Tengdar fréttir

Icelandair hyggst ekki leggjast á ríkisspenann

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að félagið teikni nú upp leiðir til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin vegna ferðabanns Bandaríkjastjórnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×