Ritstjórn breska læknaritsins Lancet sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um „mótsagnarkend og sundurlaus“ viðbrögð við kórónuveirufaraldrinum og að hafa ýtt sóttvarnayfirvöldum til hliðar. Hún hvetur Bandaríkjamenn til að kjósa sér forseta sem skilur að flokkapólitík ætti ekki að stjórna lýðheilsumálum.
Hvergi hafa fleiri látið lífið eða greinst smitaðir af nýju afbrigði kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum en í Bandaríkjunum. Nú eru fleiri en 85.000 manns látnir en engu að síður er víða byrjað að slaka á takmörkunum.
Ríkisstjórn Trump hefur verið sökuð um að vanrækja skyldur sínar og kastað dýrmætum tíma sem hefði þurft að fara í undirbúning fyrir faraldurinn á glæ. Þá hefur forsetinn farið með aragrúa rangfærslna um faraldurinn, veiruna og viðbrögð ríkisstjórnarinnar.
Þannig hefur hann meðal annars ítrekað haldið því ranglega fram að allir sem það vilji komist í sýnatöku vegna veirunnar og að veiran gæti horfið eins og fyrir kraftaverk með vorinu. Mesta athygli vakti þó þegar Trump spurði lýðheilsusérfræðinga sína á blaðamannafundi að því hvort hægt væri að baða fólk í útfjólubláu ljósi eða sprauta það með bleikiefni til að drepa veiruna.
Trump hefur einnig gert ákvarðanir einstakra ríkja Bandaríkjanna um að hvernig og hversu hratt eigi að slaka á takmörkunum að pólitísku bitbeini. Ríkisstjórn hans hefur reynt að varpa ábyrgðinni á hvernig eigi að létta á aðgerðum yfir á einstök ríki. Hann hefur jafnvel hvatt ríkisstjóra til þess að aflétta takmörkunum í trássi við leiðbeiningar sem alríkisstjórnin sem hann stýrir gaf út.
Heltekin af töfralausnum
Í leiðara breska læknaritsins Lancet, eins elsta læknarits í heimi, fer ritstjórnin hörðum orðum um viðbrögð Trump við faraldrinum. Hún sakar ríkisstjórn Trump um að grafa undan helstu embættismönnum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) sem hafi nú aðeins „málamynda“ hlutverk.
CDC sleppur þó ekki við gagnrýni Lancet sem segir stofnunina hafa klúðrað dreifingu á nýju prófi fyrir veirunni á fyrstu vikum faraldursins sem tafði verulega skimun fyrir veirunni í Bandaríkjunum á mikilvægum tíma. Enn séu Bandaríkin illa búin undir það að greina sýni og rekja smit.
„Ríkisstjórnin er heltekin af töfralausnum: bóluefnum, nýjum lyfjum eða voninni um að veiran eigi bara eftir að hverfa,“ segir í leiðaranum.
Það sé hins vegar aðeins grundvallaratriði lýðheilsumála eins og skimanir, smitrakning og einangrun sem eigi eftir að skila árangri gegn faraldrinum. Til þess þurfi skilvirka landsáætlun í lýðheilsumálum.
Afar óvanalegt er sagt að læknarit eins og Lancet lýsi svo sterkum skoðunum á stjórnmálum. Washington Post segir að það sé til marks um að vísindasamfélagið hafi vaxandi áhyggjur af því að hættulegum pólitískum klofningi varðandi vísindi í faraldrinum.
„Bandaríkjamenn ættu að koma forseta í Hvíta húsið í janúar 2021 sem skilur að lýðheilsa ætti ekki að stjórnast af flokkapólitík,“ segir í leiðaranum.