Alma, Víðir og Þórólfur nýi Dallas eldri borgara Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. apríl 2020 15:19 Þórunn Sveinbjörnsdóttir er sjálf orðin símavinur hjá Reykjavíkurborg en þeir hringja í eldri borgara og ræða við þá. Júlíus Sigurjónsson
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landsambands eldri borgara, hrósaði Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni, Ölmu Möller landlækni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni í hástert á daglegum upplýsingafundi almannavarna í dag. „Fólkið mitt fyrir aftan mig það hlustar á ykkur alla daga. Þetta er bara orðinn Dallas, aðalþátturinn,“ sagði Þórunn og brosti. Fundurinn í dag var sá 39. í röðinni þar sem þríeykið skýrir frá vendingum vegna kórónuveirunnar. Vísaði Þórunn til sjónvarpsþáttanna Dallas sem sýndir voru um árabil í sjónvarpinu, á þeim tíma sem aðeins Ríkissjónvarpið var í boði - og sjónvarp var ekki á fimmtudögum og í júlí. Þá fylgdust svo til allir Íslendingar með glæstum lífsstíl olíuauðkýfinga frá Texas. Eldra fólk um allt land er ýmist í sjálfskipuðu sóttkví eða á hjúkrunarheimilum þar sem ríkir heimsóknarbann. Eldra fólk á erfiðara með að vinna gegn Covid-19 sjúkdómnum sem kórónuveiran veldur og því lagt upp með að gæta alls öryggis á hjúkrunarheimilum. Að neðan má sjá umfjöllun CBS um Dallas og atriðið þegar J.R. var skotinn.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Sjá meira