Átján starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá prentsmiðjunni Prentmeti Odda. Þetta staðfestir Guðmundur Ragnar Guðmundsson framkvæmdastjóri Prentmets Odda í samtali við Vísi. DV greindi fyrst frá.
Guðmundur segir að uppsagnirnar séu nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir en vísaði að öðru leyti í frétt DV. Þar segir að umræddir starfsmenn hafi starfað í prentiðjuhluta fyrirtækisins og þeir hafi jafnframt verið „Odda-megin“.
Guðmundur bendir þó á að átján starfsmönnum hafi verið sagt upp hjá prentsmiðjunni en ekki nítján, líkt og segir í fréttinni.
Samkeppniseftirlitið samþykkti í lok október kaup Prentmets á Odda. Þar með varð til sameinað félag Prentmets Odda með aðsetur að Höfðabakka 7, þar sem Oddi hafði verið til húsa. Félagið tók til starfa í byrjun nóvember.
Í tilkynningu um samrunann frá 28. október síðastliðnum segir að hjá sameinuðu félagi starfi um hundrað manns.
