Öflugir eftirskjálftar trufla björgunarstarf Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 27. nóvember 2019 19:00 26 hið minnsta fórust í hamförunum í Albaníu. Vísir/AP
Öflugir eftirskjálftar hafa truflað björgunarstarf í Albaníu eftir að jarðskjálfti reið yfir landið í fyrrinótt. Minnst 26 hafa farist og á sjöunda hundrað slasast. Björgunarfólk bæði frá Albaníu og nágrannalöndunum hefur unnið af kappi í dag og í gær við að ná til þeirra sem urðu innlyksa þegar byggingar hrundu í fyrrinótt. Jarðskjálftinn sem reið yfir Albaníu var 6,4 stig. Fjöldi eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið, margir yfir fimm stigum. Tekist hefur að bjarga 42 en flest hinna látnu fórust þegar íbúðablokkir og hótel hrundu á meðan íbúarnir sváfu. Ekki liggur enn fyrir hversu margra er saknað enda ekki vitað hversu mörg festust í rústum. Neyðarbúðir hafa verið reistar á þeim svæðum sem komu verst út úr skjálftanum. Til dæmis í borginni Durres. Þar vörðu margir borgarbúar nóttinni á knattspyrnuleikvangi og sváfu í tjöldum og jafnvel bílum. Jarðskjálftar eru nokkuð algengir á Balkanskaga en skjálftinn er sá öflugasti sem riðið hefur yfir Albaníu í áratugaraðir. Fjörutíu ár eru frá því 136 fórust í 6,9 stiga skjálfta í landinu.
Albanía Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira