Á vef Landspítalans segir að Benedikt hafi verið framkvæmdastjóri þróunar hjá Landspítala frá árinu 2015 og haldið í því starfi utan um Hringbrautarverkefnið. Áður hafi hann gegnt stöðu aðstoðarforstjóra spítalans á árunum 2010 til 2015.
„Benedikt er ekki í framkvæmdastjórn Landspítala en Hringbrautarverkefnið á Landspítala heyrir beint undir forstjóra.
Ábyrgðarsvið Benedikts eru eftirfarandi:
- Aðkoma Landspítala að hönnun og uppbyggingu meðferðarkjarna, rannsóknahúss og annarra tengdra bygginga í Landspítalaþorpinu við Hringbraut.
- Yfirumsjón með tækjavæðingu og þróun upplýsingakerfa fyrir nýbyggingarnar.
- Undirbúningur fyrir flutning starfseminnar, innleiðing nýbygginga og samþætting þeirra við eldri byggingar, ásamt þróun flæðis og ferla.
- Aðkoma Landspítala að heildaráætlun um nýtingu og framtíðarþróun húsnæðis og innviða Landspítala, við Hringbraut og víðar.
Framkvæmdir í Landspítalaþorpinu við Hringbraut eru stærsti áfanginn í íslensku heilbrigðiskerfi frá upphafi. Þessi uppbygging og endurnýjun á innviðum Landspítala verður bylting í aðstöðu, þjónustu og öryggi fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsfólk,“ segir í tilkynningunni.