Skoðun

Hug­­leiðingar um miska­bætur í dóms­­málum

Réttargæslumenn neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis skrifar
Maður höfðaði mál gegn opinberri stofnun þar sem hann krafðist bóta vegna ólögmætrar uppsagnar úr starfi. Krafðist hann fjárbóta vegna missis starfsins og miskabóta vegna þess álitshnekkis sem hann varð fyrir og að vegið hafi verið að æru hans og persónu. Manninum voru dæmdar 1,5 millj. kr. í miskabætur vegna þess ófjárhagslega tjóns sem hann varð fyrir.

Hæstiréttur dæmdi íslenska ríkið til að greiða tveimur mönnum miskabætur í máli þar sem ráðherra tók aðra umsækjendur fram yfir þessa tvo menn til að gegna störfum dómara við Landsrétt. Hæstiréttur taldi að ráðherranum hefði mátt vera ljóst ákvörðun hennar gæti að ófyrirsynju bitnað á orðspori umsækjendanna og orðið þeim þannig að meini og vegið að persónu þeirra og æru. Mönnunum voru dæmdar 700 þús. kr. í miskabætur vegna ófjárhagslegs tjóns þeirra.

Kona kærir tvo menn fyrir nauðgun og krefst miskabóta. Mennirnir voru sakfelldir á báðum dómstigum og viðurkennt er að brotin hafi verið alvarleg og haft alvarlegar afleiðingar fyrir brotaþola sem hafi verið í sálfræðimeðferð vegna áfallastreituröskunar frá því að brotin áttu sér stað og að hún hafi einangrað sig félagslega, átt erfitt með að vera í kringum fólk og treysta fólki. Miskabætur til handa brotaþola þóttu hæfilega ákvarðaðar 1.millj kr. í miskabætur úr hendi hvors sakfellda um sig vegna hennar ófjárhagslega tjóns.

Maður er dæmdur fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot gagnvart barnabarni sínu á 3 ára tímabili frá því að drengurinn var 9 ára gamall. Þegar málið var dómtekið hafði barnið farið í rúmlega 50 viðtöl í Barnahúsi og var drengurinn greindur með áfallastreituröskun. Hann upplifði jafnframt mikla skömm og sálarangist þar sem sakfelldi var nákominn honum. Einnig var um að ræða brot karlmanns á ungum dreng sem reynist oft erfitt að meðhöndla samkvæmt sálfræðingi Barnahúss. Fram kom að erfitt væri að segja til um afleiðingar brotanna á líðan brotaþola til framtíðar en að öllum líkindum þyrfti hann á áframhaldandi meðferð að halda um óákveðinn tíma.

Miskabætur til handa brotaþola þóttu hæfilega ákvarðaðar 1,7 millj. kr. vegna hans ófjárhagslega tjóns.

Allir þeir dómar sem vísað er til hér að framan eru frá árunum 2017 – 2019 og byggja á því að rétt hafi verið að láta þann sem ábyrgð bar á ólögmætri meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu annars manns, greiða miskabætur til þess sem misgert var við.

Maður fær hærri miskabætur fyrir ólögmæta uppsögn en kona sem er nauðgað hrottalega.

Barn fær aðeins helmingi hærri miskabætur fyrir áralöng kynferðisbrot en menn sem fengu ekki vinnuna sem þeir sóttu um.

Þá hlýtur stóra spurningin að vera þessi:

Er það mat dómstóla að æra og persóna aðila sem missa atvinnu sé meira virði en frelsi, friður, æra eða persóna þess sem brotið er á kynferðislega?

Þeir réttargæslumenn sem standa að þessari hugleiðingu telja ótækt að miskabætur til handa brotaþolum í kynferðisbrotamálum séu eins lágar og raun ber vitni. Þessu verður að breyta!

Höfundar eru réttargæslumenn neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður


Ólöf Heiða Guðmundsdóttir lögmaður

Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður

Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður

Valgerður Valdimarsdóttir lögmaður

Margrét Gunnlaugsdóttir lögmaður

Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður




Skoðun

Sjá meira


×