„Jökull kemur til mín með þessa hugmynd og var sjálfur búinn að vinna ákveðna forvinnu að þessu öllu saman. Ég var búinn að vera vinna í NTC og Kulture og þessu öllu í einhver sjö ár á þessum tímapunkti. Hann kemur að máli við mig og ég segi bara strax já,“ segir Egill um tímann þegar þeir voru við það að stofna fyrirtækið. Hann segir að þeir hafi byrjað á því að setja eigin pening í það að fjárfesta í nauðsynlegum hlutum sem tengdust rekstrinum.
„Það var bara ehf, mátunarföt og efnabækur. Það var í rauninni bara upphafskostnaðurinn. Fyrsta eitt og hálfa árið, næstum því tvö ár erum við að vinna bara launalaust í þessu. Hver einasta króna sem kemur inn helst inni og fer í það að fjármagna reksturinn frekar.“
„Ég þakka bara einhverskonar barnslegir einfeldni. Ég er 22 ára þegar við byrjum og maður er bara ungur og er ekkert að stressa sig á hlutunum,“ segir Egill sem fer ítarlega yfir sögu fyrirtækisins í þættinum.
Í þættinum hér að ofan ræðir hann einnig um uppvaxtarárin, menntaskólaárin og hvernig hann vakti oft athygli fyrir klæðaburð sinn. Hann kom að stofnun á smáforriti en tæknigeirinn hentaði honum ekki og því sneri hann sér að fatnaði sem hefur gengið vel. Egill fer vel yfir það hvaða mistök karlmenn gera oft og tíðum í klæðaburði.