Stelpurnar komust ekkert áleiðis á móti Serbunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2019 15:31 Sara Sif Helgadóttir var valin maður leiksins hjá Íslandi en hún varði 17 skot í leiknum. Mynd/HSÍ
Íslenska nítján ára kvennalandsliðið í handbolta tapaði með átta marka mun á móti Serbíu, 22-14, í þriðja leik sínum í B-deild EM kvenna í dag. Sóknarleikur íslenska liðsins var í algjörum molum í leiknum í dag. Berta Rut Harðardóttir var markahæst með fimm mörk en fjögur marka hennar komu af vítalínunni. Birta Rún Grétarsdóttir var næstmarkahæst með þrjú mörk. Sara Sif Helgadóttir, markvörður, var kosin besti leikmaður íslenska liðsins í leiknum. Hún varði oft vel en vörnin var ekki vandamálið í leiknum í dag. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik þar til að Serbarnir náðu þriggja marka forystu fyrir hálfleik, 10-7. Serbnesku stelpurnar skoruðu fimm af fyrstu sex mörkum seinni hálfleiks og komust í 15-9. Þá var eftirleikurinn mjög erfiður fyrir íslenska liðið. Þrjú íslensk mörk í röð minnkuðu aftur í þrjú mörk, 15-12. en þá gengi íslensku stelpurnar aftur á vegg. Serbneska liðið skoruðu fimm mörk í röð og komust í 20-12. Stefán Arnarson og íslensku stelpurnar fundu engar leiðir og urðu að lokum að sætta sig við átta marka tap. Íslenska liðið vann Grikkland í fyrsta leik en hefur síðan tapað tveimur leikjum í röð á móti Búlgurum og nú Serbum. Íslensku stelpurnar mæta Bretlandi á morgun í lokaleiknum sínum í riðlinum en bresku stelpurnar hafa tapað öllum sínum leikjum á mótinu.
Handbolti Mest lesið Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Enski boltinn Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Enski boltinn Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Enski boltinn „Ég elska NFL en jóladagur er okkar“ Körfubolti Sáu ekki til sólar en unnu samt Enski boltinn Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Fótbolti Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafi tvisvar vikið af velli og ekkert skorað síðustu tvær mínúturnar Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Sjá meira