Hægt að læra tvennt af neyðarláni Seðlabankans Birgir Olgeirsson skrifar 27. maí 2019 17:39 Már Guðmundsson þegar hann kynnti skýrsluna í dag. Vísir/Vilhelm
Skýra þarf betur stjórnsýsluna í kringum veitingu lána til þrautavara og veð í hlutafé erlends banka er ekki heppilegt þegar Seðlabankinn veitir lán til innlendra banka. Þetta kemur fram í skýrslu Seðlabanka Ísland um hið svokallaða neyðarlán Seðlabankans til Kaupþings 6. október árið 2008. Lánið var í erlendum gjaldmiðli og nam 500 milljónum evra. Eignarhlutur Kaupþings í danska bankanum FIH Erhversbank (FIH) var tekinn að veði fyrir láninu. Í skýrslunni er fjallað bæði um aðdraganda lánveitingarinnar, framkvæmd hennar og eftirmál sem fólust í tilraun Seðlabankans til að endurheimta andvirði lánsins með því að selja eignarhlutinn í FIH bankanum. Í skýrslunni segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri að mikilvægt sé að draga lærdóm af þessari reynslu. Skýra þurfi betur stjórnsýsluna í kringum veitingu lána til þrautavara. Nefnir Már að í frumvarpinu sem nú liggur fyrir Alþingi að nýjum lögum um Seðlabanka Íslands sé gert ráð fyrir að ákvarðanir um veitingu þrautavaralána séu teknar á fundi seðlabankastjóra og þriggja varaseðlabankastjóra og skuli skráðar í fundargerð. Þá er ákvæði um að ráðherra sem fer með efnahagsmál og fjármál skuli upplýstur um slíkar ákvarðanir. Már nefnir að í öðru lagi þurfi að draga þann lærdóm að veð í hlutafé erlends banka sé ekki heppilegt þegar Seðlabankinn veitir lán til innlendra banka. Almennt þarf að draga þann lærdóm að seðlabankar þurfi á hverjum tíma að hafa gott yfirlit um tiltæk veð þeirra banka sem eru í viðskiptum við þá. Fjallað um endurheimtur á láninu Í skýrslunni kemur fram að Seðlabankinn muni líklega ekki endurheimta mikið meira af 500 milljóna evra láni sínu til Kaupþings en sem nemur 260 milljónum evra. Már segir að í dag liggi fyrir að ekki hafi verið rétt að veita lánið.Vísir/Vilhelm „Það liggur einnig fyrir að nýir eigendur FIH eiga eignarhaldsfélag sem tók við af FIH bankanum og takist þeim að selja eignir félagsins nálægt bókfærðu virði, líkt og útlit er fyrir, þá munu þeir fá þokkalegan hagnað af fjárfestingu sinni. Það hefði varla gerst án umtalsverðs stuðnings danskra stjórnvalda við rekstur -bankans á árunum eftir 2008. Verði þetta raunin er ósvarað þeirri spurningu hvort og í hvaða mæli þessi hagnaður væri á kostnað danskra eða íslenskra skattgreiðenda eða, eins og eigendurnir hafa haldið fram, hvort það væri vegna þrotlausrar vinnu þeirra sjálfra við að viðhalda verðmætum og skapa ný við erfiðar aðstæður? Þessari spurningu verður ekki svarað hér enda liggur niðurstaðan ekki fyrir og sagan að baki nær langt út fyrir vettvang Seðlabankans. Það er að miklu leyti dönsk saga og gögnin sem þá þyrfti að skoða geymd í Danmörku. Kannski verður sú saga einhvern tíma skrifuð,“ segir í skýrslunni. Inntu af hendi greiðslur sem annars hefði leitt til falls Í skýrslunni er farið yfir í hvað lánið fór en ekki er hægt að draga einhlítar ályktanir um ráðstöfun þrautavaraláns Seðlabankans. Útgreiðslur af evrureikningi Kaupþings á þessum tíma sýna þó að verið var að inna af hendi greiðslur sem ella hefðu líklega leitt til falls bankans. „Færslurnar bera með sér að áhlaup er í gangi á innstæður og önnur fjármögnun er að verða erfiðari sem lýsir sér í veðköllum sem væntanlega tengjast veð- og endurkaupasamningum. Samtals nema greiðslur til norræns seðlabanka, útstreymi á innstæðum og greiðslur vegna veðkalla 442 milljónum evra. Vegna greiðslna í tengslum við CLN skuldabréfið má nefna að málið er ennþá til meðferðar hjá dómstólum. Ekki er heldur hægt að draga miklar ályktanir af upplýsingum um fjárhæð gjaldeyrisviðskipta og mótaðila í þeim viðskiptum. Gera má ráð fyrir að þær færslur hafi þegar verið skoðaðar af þar til bærum aðilum,“ segir í skýrslunni. Hvorugt var rétt Þá segir í skýrslunni að leiða megi að því sterkar líkur, sem studdar eru með seinni tíma yfirlýsingum, að ákvörðunin hafi byggst á því að með lánveitingunni mætti tryggja að einn banki yrði áfram starfandi á landinu og að traust veð gerði áhættuna af tapi litla. „Við vitum nú að hvorugt var rétt og að eftir á að hyggja hefði verið betra að veita ekki lánið. Það er hins vegar ekki þar með sagt að þetta hafi verið rangt sjónarmið miðað við aðstæðurnar og þær upplýsingar sem þá lágu fyrir. Allt orkar tvímælis þá gjört er og ekki er alltaf viðeigandi að nota einungis mælistikur upplýsinga síðari tíma þegar einstakar ákvarðanir eru metnar. Í því fjármálalega fárviðri sem þá geisaði um allan heim réru bankar lífróður og seðlabankar og önnur stjórnvöld komu til aðstoðar,“ segir í skýrslunni. Skýrsluna í heild má lesa hér.
Seðlabankinn CLN-málið Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira