Jón Ólafsson, tónlistar- og fjölmiðlamaður á RÚV, er ágætt dæmi um þetta en hann ritaði stuttan pistil á Facebooksíðu sína í morgun þar sem hann lýsir yfir sárum vonbrigðum sínum með Eurovision, þá í því sem hann segir vel heppnaða áróðurshátíð Ísraela.
„Ég varð bara sorgmæddur þegar Dana International boðaði frið og ást í þaulskipulögðu áróðursatriði Ísraela í Eurovision í gærkvöldi. Mér fannst þetta álíka yfirborðskennt og lýtalaust andlit flytjandans. Skammt undan búa Palestínumenn í gettóinu sínu; niðurlægðir og fullir vonleysis um eðlilegt líf,“ skrifar Jón.
Ég varð bara sorgmæddur þegar Dana International boðaði frið og ást í þaulskipulögðu áróðursatriði Ísraela í Eurovision...
Posted by Jón Ólafsson on Wednesday, May 15, 2019
Aflátsbréf fyrir kúgun Palestínuaraba
Einörð afstaða Jóns vekur ekki síst athygli í því ljósi að Jón hefur starfað lengi fyrir RÚV við þáttagerð. Útgefandinn Kristján B. Jónasson segir þetta forkastanlega ömurlegt: „Það er eins og Ísraelsmenn haldi að með því að vera jákvæðir gagnvart hinsegin fólki hafi þeir greitt fyrir aflátsbréf fyrir kúgun Palestínuaraba.“Enn einn sem tjáir sig við færslu Jóns, sem er ágætt dæmi um þá sem velta fyrir sér hvort mótmælunum sé nægjanlega til haga haldið, er tónlistarmaðurinn Haukur Viðar Alfreðsson sem segist binda vonir, veikar þó, við að „masterplan Hatara hafi verið að komast áfram í úrslitin, með tilheyrandi umfjöllun og ögrunum — og láta sig síðan hverfa sporlaust fyrir útsendingu á laugardag. Skrópa bara. Get ekki ímyndað mér mótmæli sem fengju jafn mikla athygli.“
Egill Helgason, helsti sjónvarpsmaður RÚV, segir einfaldlega: „Ekki gott.“
Allt samkvæmt áætlun … RÚV
Málið allt er snúið. Og fögnuðurinn yfir því að eyðimerkurgöngu Íslands sé nú lokið með að komast ekki upp úr undanriðlinum er blendinn. Eins og fram kom á sínum tíma skrifuðu þúsundir manna undir áskorun til RÚV að sniðganga Eurovision í ljósi mannréttindabrota Ísraelríkis gagnvart palestínsku þjóðinni. Meðal þeirra sem vildi sniðganga keppnina nú er Eurovision-goðsögnin Páll Óskar.
Erfiðir bjargvættir stofnunarinnar
Árni hafði lög að mæla. Eftir að Hatari kom fram á sjónarsviðið í þessu samhengi dó undirskriftasöfnunin og lítt til hennar spurst síðan. Hatari var þannig talin ásættanleg lending fyrir þá sem voru andsnúnir þátttöku. En um leið telja þeir sem létu af afstöðu sinni eiga kröfu á hljómsveitina sem er þannig milli steins og sleggju.
Hatari, sem hafa boðað að þeir vilji nota dagskrárvald sitt til að mótmæla ástandinu hafa augljóslega reynst þeim sem fara með Eurovision-mál RÚV erfiðir sem slíkir. En um leið bjargvættir með að koma Íslandi upp úr undanriðlinum. Sem er ef til vill öfugsnúið. Felix Bergsson, fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins, segir það mikinn létti að hafa komist upp úr undanriðlinum.
Múlbundnir Hatarar
Í öllum viðtölum sem meðlimir Hatara hafa farið undanfarna daga í hæðast þeir að og/eða vísa til þess að þeirra skoðanir séu of pólitískar. Eða svara með loðnum hætti. En, þeir hafa reyndar komið inná hernámið í viðtölum fyrir undankeppnina hér heima sem og í viðtölum við erlenda fjölmiðla og á Eurovision-blaðmannafundum eftir að til Ísrael var komið.
Ísraelskir blaðamenn voru í sambandi við Vísi í gær og spurðu þá meðal annars ítrekað hvort vænta megi þess að Hatari myndu vera með óvænta uppákomu á sviðinu. Þá af pólitískum toga. Þeir töldu spennu þar um ekki síst gera íslenska lagið svo spennandi sem raun ber vitni.