Icelandair tapaði 6,7 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. maí 2019 23:03 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Arnar
Flugfélagið Icelandair tapaði 6,7 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins fyrir fjórðunginn sem kynnt var í dag. Í tilkynningu frá félaginu segir að heildartekjur þess á fjórðungnum hafi verið 30,2 milljarðar króna. Það er sjö prósent lækkun frá árinu 2018. Þá var afkoman fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) neikvæð um 1,8 milljarða króna en það er þó 19 prósent betri afkoma en í fyrra. Eiginfjárhlutfall félagsins í lok mars var 23 prósent samanborið við 32 prósent í árslok 2018. Þá fjölgaði farþegum til Íslands um 13 prósent. Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að rekstur félagsins hafi hins vegar verið krefjandi eins og búist hafði verið við. Rekstrarniðurstaðan sé í takt við áætlanir. „Þróun fargjalda var neikvæð milli ára, sem skýrist meðal annars af mikilli samkeppni við flugrekendur sem boðið hafa upp á ósjálfbær fargjöld. Jafnframt var áframhaldandi þrýstingur á fargjöld milli Evrópu og N-Ameríku. Innleiðingar- og þjálfunarkostnaður vegna sex nýrra flugvéla sem félagið hafði gert ráð fyrir að taka í notkun hafði neikvæð áhrif auk þess sem einskiptiskostnaður féll til vegna kyrrsetningar B737 MAX flugvéla,“ er haft eftir Boga í tilkynningunni en nánar má lesa um uppgjörið hér.
Fréttir af flugi Icelandair Mest lesið Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Sjá meira