Krydd og kaldhæðni Ívar Halldórsson skrifar 7. maí 2019 13:29 Það er athyglisvert að fylgjast með fréttaveitunum okkar keppast við að segja okkur krassandi og um leið ofurkryddaðar fréttir frá átökunum milli Ísrael og Gaza. Það sorglega er að svo margt heldur einfaldlega ekki vatni - og það er alveg augljóst! Þá er afar athyglisvert að þær halda að lesendur sjái ekki í gegnum misvísandi skilaboðin, klaufalegar fullyrðingar og órökréttan málflutninginn. Kannski þarf að ýkja ýkjurnar pínulítið til að fréttamenn átti sig á hvernig fréttir þeirra hljóma í eyrum okkar sem kunnum að nota einfalda rökhugsun, internetið og áttum okkur auk þess auðveldlega á hálf-broslegum rangfærslum. Þessi uppspunna frétt hér að neðan ýkir um leið og hún hugsanlega afhjúpar hlutdrægni fréttamiðla. Þó eru sumir sem munu ekki átta sig á þessu; blindaðir af fjölmiðlareyknum sem kæfir dómgreind og rökhugsun allt of margra lesenda. Eftirfarandi gamni fylgir einhver alvara og kjarni málsins liggur þarna einhvers staðar í kaldhæðninni:„Allt Ísraelsmönnum að kenna“ Uppreisnarmenn á Gaza skutu eldflaugum á Ísrael að sögn óáreiðanlegra ísraelskra sjónarvotta (líklega zíonistar) sem auk þess eru hliðhollir vafasamri stefnu Netanyahu í stjórnmálum. Ísraelskir hermenn vilja meina að eldflaugunum hafi verið skotið viljandi á loft og í eyðileggingarskyni. Hryðjuverkaleiðtogi Hamas segir hins vegar heiðarlegan tilgang eldflaugaskotanna vera að mótmæla friðsamlega hernámi Ísraelsmanna.Friðelskandi hryðjuverkamenn Til að undirstrika meinleysi eldflauganna hafa yfirvöld á Gaza heimilað friðelskandi hryðjuverkamönnum sínum að skjóta þeim á loft frá skólum, spítölum og moskum. Ísraelskir hermenn hafa rangtúlkað saklausa eldflaugahrinu vígbúinna mótmælenda sem raunverulega árás gegn ísraelskum borgurum og í kjölfarið hefur ísraelski herinn svarað fyrir sig að óþörfu, undir því yfirskyni að verja ísraelskar fjölskyldur.Hvorki drepið né myrt Heilbrigðisráðherra Gaza fullyrðir að ef ísraelskir hermenn hefðu sleppt því að svara fyrir þessar 690 eldflaugar sem skotið var að ísraelskri byggð hefðu engir palestínskir borgarar lent í því að verða miðpunktar í morðmáli. Það er nefnilega alkunnugt orðið að á meðan ísraelskir borgarar eiga til að falla eða láta lífið í friðsamlegum mótmælum hryðjuverkamanna, drepast palestínskir borgarar hins vegar eða eru myrtir í grimmilegum gagnárásum herskárra Ísraelsmanna. Svona getur örlagastundin verið ólík milli mismunandi kynþátta, þótt orsökin sé oft nákvæmlega hin sama. Þá er rétt að taka fram að Palestínumenn hafa aldrei drepið eða myrt nokkurn mann. Sannanir fyrir þeirri staðreynd er að finna í fyrirsögnum fagfréttamiðla. (Það er reyndar ekki algengt að kalla mannfall í stríðum milli andstæðra þjóðfylkinga morð; en þegar kemur að Ísraelum finnst okkur sjálfsagt að gera þessa undanþágu).Karlmenn þvælist fyrir skotmörkum Netanyahu staðfesti þá að leyniskyttur Ísraelsmanna hafi sett morð á börnum og konum í algjöran forgang til að auka möguleika á friði fyrir litla landsvæðið sitt sem annars er umkringt óvinveittum Arabaþjóðum. Segir hann t.d. barnamorð vera lykilatriði til að bæla niður reiði Palestínumanna, en það getur stundum reynst erfitt að hæfa konur og börn þótt þau séu á fremstu víglínu því að karlmennirnir eru alltaf að þvælast fyrir.„Barnavagnabomban“ Í einlægu viðtali sagði leiðtogi hryðjuverkasamtaka Hamas” mesta hættu stafa af langdrægum; svokölluðum „barnavagnabombum” Ísraelsmanna - en á hann við eldflaugar sem gæddar eru þeim tæknibúnaði að geta leitað uppi saklaus börn og verðandi mæður án þess að hæfa hryðjuverkamenn. Ísraelsher vildi ekki kannast við þessa tækni. En Abbas lofaði að hann væri ekki að grínast, enda engin ástæða til að efast um orð leiðtoga hryðjuverkasamtaka.Ísrael milliliður uppreisnarmanna Í friðarumleitunum sínum hefur hin lýðræðislega stjórn Hamas fordæmt aðgerðir uppreisnarmanna á Gaza - en umræddir uppreisnarmenn hafa með eldflaugaárásum sínum á Ísrael valið lengri leiðina til að gagnrýna stjórn Hamas og setja þrýsting á stjórn sína til að hlúa betur að palestínskum borgurum. Með því að nota Ísrael sem millilið vonast þeir til að senda skýr skilaboð til heimastjórnar sinnar.Miðausturlandatölfræðin Hryðjuverkastjórn Hamas hefur þá ranglega verið sökuð um hryðjuverkastarfsemi gegn Ísrael og eigin borgurum, en samkvæmt Miðausturlandatölfræðinni eru hverfandi líkur á því að hryðjuverkamenn í hryðjuverkasamtökum standi fyrir hryðjuverkaaðgerðum - nema þá auðvitað óvopnaðir og koma þá aðeins handalögmálshryðjuverk til greina í góðgerðaskyni.Falsaðar fréttamyndir Að sögn talsmanns Ísraelshers er þetta ekki í fyrsta skipti síðan 1948 sem eldflaugum hefur verið skotið yfir ísraelska byggð í kjölfar friðsamlegra mótmæla Gazabúa. Hann fullyrðir að eldflaugum hafi verið skotið á Ísrael áður. Þessi fullyrðing hefur þó ekki verið staðfest af friðarsamtökum Hamas. Þá hafa einmitt fáar fréttamyndir fundist af eyðileggingu í Ísrael og ekki ólíklegt að þær fáu sem fundist hafa séu falsaðar.Kjarnyrt kröfuspjöld Þá hefur lýðræðisleg stjórn íhaldssamra öfgamanna á Gaza hvatt palestínska borgara til að safnast saman við landamærin til að vekja athygli á sárri heimþrá hryðjuverkamanna. Samkvæmt gamalgróinni og góðri mótmælahefð taka fjölskyldur þær sem vilja taka þátt í mótmælunum með sér beitta brauðhnífa fyrir brauðhleifinn og logandi flugdreka fyrir börnin að leika sér að á meðan foreldrar standa friðsamir og þöglir með kjarnyrt slagorð á kröfuspjöldum sínum, eins og t.d. „Það er ódýrara að kaupa bara flugmiða aðra leið frá Ísrael“, „Þurfið ekki að læsa á eftir ykkur“ og „Við lofum að haga okkur vel heima hjá ykkur!“.Molotov og mazel tov Til að fagna tjáningarfrelsi og skála fyrir vel heppnuðum mótmælum tekur fullorðna fólkið gjarnan með sér hressandi hátíðarkokteila í flöskum - eins og t.d. hinn vinsæla Molotov-kokteil sem er víst algjör bomba! Þá er hefð fyrir því hinum megin við landamærin að þegar friðsamleg eldflaugamótmæli fara fram á Gaza fari ísraelskar fjölskyldur saman niður í kjallara sem þau kalla hinu dramatíska nafni “Sprengjubyrgið”. Þar fer hún saman í leik sem gengur út á að láta ekki meinlausu eldflaugarnar drepa sig. Ef einhver nær ekki nógu fljótt niður í kjallarann og verður fyrir eldflaug, er sá og hinn sami úr leik og fær aldrei að taka þátt aftur. Mazel tov!Klaufalegt þjóðarhreinsunarátak Gyðinga Hamasliðar halda nú áfram að mótmæla friðsamlega og breiða út sannleikann um grimmd Gyðinga og um leið vandræðalegan klaufaskap þeirra í þjóðhreinsunarátaki sínu, en ef þeir fara ekki að standa sig betur fljótlega munu þeir fá alþjóðlega viðurkenningu frá Sameinuðu þjóðunum fyrir “Hægustu þjóðarhreinsun allra tíma” - því Palestínumönnum fækkar ekki, heldur fjölgar. Á Gaza er fjölgunin sú 13. hraðasta í heiminum! Þvílíkir klaufar þessir Gyðingar! Hamas eru þó eins og allir vita saklaus samtök sem halda áfram af alúð að standa við ríka meiningu skammstöfunar samtakanna, H.a.m.a.s: „Heiðursmenn að mótmæla annað slagið”Aðgerðarleysi besta vopnið Við Íslendingar sem þekkjum af reynslu hvernig á að slaka á meðan mörg hundruð eldflaugar taka stefnu á Reykjavík, vitum að það er fáránlegt að verjast með vopnum sem leitt gætu til hörmunga hjá þeim sem reyna að skjóta eldflaugum á heimili okkar. Auðmýkt og aðgerðarleysi eru auðvitað bestu vopnin í slíkum kringumstæðum. Svo er líka bara hægt að opna hurðina á landamærunum og bjóða bara öllum mótmælendunum í kaffi og kleinur.Lokaorð Í alvöru fréttamenn! Gömlu taktlausu tuggurnar sem enn birtast viðstöðulaust á fréttamiðlunum eru löngu hættar að vera trúverðugar. Við sjáum fordómana betur í dag en áður, af því að þeir eru faldir á bak við glerveggi. Það er búið að ýkja ýkjurnar svo oft og teygja lygina svo mikið í gegnum árin að sannleikurinn er loksins farinn að sjást gegnum götin! Vinsamlegast ávinnið ykkur traust okkar aftur með því að segja satt og rétt frá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Er íslenskan að verða gestur í eigin landi? Petra María Ingvaldsdóttir Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson Skoðun Veist þú hvað „foid“ er? Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir Skoðun Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson Skoðun Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun Já, ég styð aðildarviðræður Ólafur Margeirsson Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Ef þetta væri barnið þitt Arnar Kjartansson skrifar Skoðun Eru áfengiskaup verndandi þáttur? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Hvenær er maður þjófur og hvenær er maður ekki þjófur? Einar Helgason skrifar Skoðun Gerðu það sem ég segi, ekki það sem ég geri! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Frá fullveldi til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fögnum Heimsdegi hafsins 8. júní Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að verða gestur í eigin landi? Petra María Ingvaldsdóttir skrifar Skoðun Barátta við náttúru og yfirvald Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Já, ég styð aðildarviðræður Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Veist þú hvað „foid“ er? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ETS, ESB og EES – Að fá sæti við borðið Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fiskurinn, valdið og tilfinningin fyrir fullveldi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Afskipti Rússlands og ESB: tvöfalt siðferði í nafni lýðræðis Júlíus Valsson skrifar Skoðun Gervigreind nýtist best með mannlegri þekkingu og reynslu Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar sorg verður valdatæki Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hvalir éta frá okkur fiskinn? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Stígum ölduna saman Víglundur Laxdal skrifar Skoðun Þegar líf er í húfi Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hver á að veita þjónustuna? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Getum við lært af Bjarti í Sumarhúsum? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þorgerður leitar ESB-stuðnings úr ótrúlegustu áttum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Leikrit fáránleikans á Hverfisgötu Davíð Bergmann skrifar Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun
Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun
Skoðun Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar
Skoðun „Mamma, sjáðu, útlendingur!“ – Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Hvernig Ráðhúsið var gert að hagsmunaskrifstofu á kostnað almennings Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Svartkimi samfélagsins: Þegar tveir heimar mætast í yfirheyrsluherberginu Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir Skoðun
Hvenær ætlar ríkisstjórnin að hætta að ljúga að sjálfri sér – og okkur? Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun